Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 07.06.1970, Side 32

Sjómannadagsblaðið - 07.06.1970, Side 32
Annar hinna fyrirliuguðu skuttogara. vildi ekki missa mig með þessum hætti og reyndar engum, blessunin, frá öllum börnunum. ... Það er eins og gengur á langri ævi við róðra á smábátum, að maður lendir náttúrlega oft í tvísýnu. Ég var á sjó á árabáti í Sumarmálaveðrinu 1913, þegar fjölda báta hlekktist á í Bolunga- vík, en þaðan reri ég á sexmanna fari með Helga í Dal. Við höfðum róið um nóttina út á Kví eða Allautir og vorum norður á Hesti. Það var undiralda, en blankalogn. Hann skellti á skömmu eftir að við vorum búnir að leggja. Við ætluðum að reyna að sigla inn Djúpið, en mastrið hrökk strax í sundur um þóftuna, og líkast til hefur það orðið okkur til lí'fs. Ef við hefðum siglt inn, þá hefðum við lent í harðasta Fjarða- veðrinu. Þegar mastrið var brotið, tálg- uðum við til stubbana og tjösluðum upp horni af seglinu og hleyptum síðan und- an og til Skálavíkur. Okkur tókst þar vel landtakan og héldum inn yfir Heiði fótgangandi. Svo mikið var rokið, að við stóðum ekki á fótunum, heldur urð- um að skríða um stund undir fjallinu, þegar kom niður af heiðinni.. Þetta var sannarlega ofsalegt norð-austanveður og bylurinn eftir því, enda hlekktist mörg- um á. Mávurinn sökk á landleið, kútt- erinn Hekla hleypti upp á Sandinn, og Þorsteinn Eyfirðingur var hætt kominn á Elliða, en flestir náðu Bolvíkingarnir til ísafjarðar, hleyptu þangað. Mér er það minnisstætt, þegar við vorum að beita um nóttina, að mér varð gengið út, það sást ekki skýhnoðri á lofti, en sem ég stend þarna úti, þá skýtur upp tveimur hnoðrum í norðri, en þeir hurfu nær samstundis. Mér þótti þetta einkennilegt fyrirbæri og ekki góðs viti. Það hefur margt breytzt á langri ævi, eins og gengur, frá því að vinnukon- urnar höfðu 12 krónur í árskaup, sem Jakob í Ogri hækkaði af sjálfsdáðum upp í 20 krónur, og varð þá einum höfð- ingjanna í Djúpinu að orði, að nú yrði hann að hætta að búa, hans bú stæði ekki undir svoddan kaupgreiðslum. Og getur það svo sem hafa verið rétt, þó að Ögurbúið gerði það. 18 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.