Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 07.06.1970, Síða 50

Sjómannadagsblaðið - 07.06.1970, Síða 50
Fyrsti haffrœðingurinn Það kann að þykja furðulegt, en það er staðreynd samt, að allar þær aldir, sem maðurinn hefur notað hafið til að ferðast um, eða allt fram á seinni hluta nítjándu aldar, hefur guð og lukkan ráðið mestu um ferðina. Og það er nú kannski svo enn. Þegar ferð hófst hafði enginn hugmynd um hversu langan tíma siglingin tæki né hver væri stytzta leiðin milli tveggja staða. Það var ekki fyrr en Matthew Fontaine Maury kom á vettvang, að menn fóru að tileinka sér aðferðir til að sigla stytztu leið frá einum stað til annars. Skoðanir hans og aðferðir vöktu furðu manna á fimmta tug síðustu aldar. Áratug síðar, tóku skoðanir hans að valda breytingum, eða á sjötta tug nítjándu aldarinnar. Það er endalaust þörf á að segja þessa sögu, því að hún er saga af svo mikilsverðu undirstöðuatriði í siglingafræði og haffræði og samgönguhraða. Maury var Virginíumaður og fæddist í mestu óbyggð- um þess fylkis. Þegar hann var fimm ára fluttust for- eldrar hans með böm sín, níu talsins, að landamærum Tennessee fylkis og ruddu sér land í villtum skógin- um, reistu sér bjálkahús og þarna ólst Maury upp. Hann dafnaði vel og lífið brosti við honum, þar til hann var tólf ára gamall að hann datt niður úr tré og meidd- ist í baki. Það má þó segja, að þetta slys hafi verið dul- búin gæfa, því að það varð til þess, að faðir Maury taldi hann of veikbyggðan til búskapar og sendi hann til náms í Harpeth Academy í nánd við Franklin í Tennessee. Þarna komu fljótt í ljós námsgáfur hans og rannsóknarhæf ileikinn. Þessi ungi og mikli námsmaður vildi vinna sér frama í hernum og byrja þann framaferil í West Point (Skóli foringjaefna). Faðir Maurys var mjög trúaður maður og haldinn friðarhugsjónum og hann vildi ekki með nokkru móti styðja son sinn í þessari ætlan — og var reyndar alveg óður yfir þessu uppátæki. Maury yngri lét sig ekki, heldur réðist sem miðskipsmaður á banda- rískt herskip, nítján ára gamall. Faðir hans varð nú svo reiður honum, að hann neitaði að kveðja son sinn og lagði honum engan farareyri, og studdi hann sem sagt ekki með nokkrum hætti. Maury hélt því að heim- an á lánuðum klár og með 30 dollara að láni í reiðufé og var ferðinni heitið til Washington. I níu ár sigldi hann um höfin og kom til flestra helztu hafna heims. Hinar skapandi gáfur hans og mikla at- 36 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ hyglisgáfa nutu í ríkum mæli þessarar reynslu, jafnt á sjónum, sem í hinum erlendu höfnum. Starfsleikni hans var annáluð, bæði meðal undirmanna og yfir- manna. Að hann helgaði sig svo mjög starfi sínu leiddi það af sér, að hann „hlýddi öllum skipunum umsvifalaust og gekk glaður að verki, án tillits til þess hversu óskemmtilegt skyldustarfið var.“ Hann var vinsæll meðal skipsfélaga sinna og yfir- menn hans höfðu mikið álit á hæfileikum hans. Sluppskipið Falmouth var fyrsta stórskipið, sem hann stjórnaði. Árið 1831 átti hann að sigla þessu skipi fyrir Hornhöfða til Valpariosi í Chile. Honum var sá vandi á höndum, eins og öðrum skipstjórnarmönnum, að ferð- in gengi snurðulaust og eins hratt og unnt var. Til þess að afla sér upplýsinga, sem honum mætti að haldi koma, las hann sér til í siglingafræðibókum, spurði í þaula vana siglingamenn um hagstæðustu vindana og straumana. Hann varð furðulostinn yfir þeim mót- sögnum, sem hann rak sig á og eins því, hversu lítið menn vissu í rauninni um þessi mikilsverðu siglinga— atriði. Þetta varð til þess, að nú hófst ferill, sem eigin- lega mætti kalla krossferð, sem varð til að gera hann heimsfrægan. Það var vegna hinna ófullkomnu og vill- andi upplýsinga, sem hann fékk, að hann tók til að bókfesta eigin athuganir og allt það um siglingafræði, sem hann gat aflað sér. Þegar hann kom aftur til Bandaríkjanna 1834, kvænt- Matthew Fontaine Maury.

x

Sjómannadagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.