Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 07.06.1970, Page 51

Sjómannadagsblaðið - 07.06.1970, Page 51
ist hann Ann Herndon, frændkonu sinni og settist að í Fredericksburg í Virginíu. Þar reit hann síðan hinar frægu greinar um siglingafræði, sem fjölluðu um hvernig ætti að kenna ungum foringjaefnum að finna stytztu leiðina á siglingu milli ákvörðunarstaða. Þessi skrif ásamt ritgerðum og blaðagreinum um aðra þætti siglingafræði urðu til að knýja þennan starfsama heila til að halda áfram að kynna sér þessi vísindi. Til að auðvelda sér það starf lagði hann stund á landafræði og bergfræði. Með þessum hætti ætlaði hann sér að auka við hina litlu þekkingu manna á siglingum og hegðan hafsins. Eftir að hafa sinnt skyldustarfi, sem yfirumsjónarmaður með gullnámu í eigu ríkisins í nánd við Fredericksburg, varð hann liðsforingi að tign og sú staða leiddi til þess, að honum var skipað að mæla upp nokkrar hafnir í Suðurríkjunum. Árið 1838 var hann að koma úr heimsókn frá for- eldrum sínum, þegar hann varð fyrir slysi, sem átti eftir að valda honum baga allt hans líf. Hestvagninn, sem hann ferðaðist í, átti leið um bakka, rigning var mikil og bakkinn lét undan vagninum, sem hvolfdi. Maury brotnaði í mjaðmarlið. Beinsagarinn, sem setti saman brotið, vann verk sitt illa, sem olli því, að Maury stakk við, það sem eftir var ævinnar og gaf það öfundarmönnum hans innan flotans tilefni til að hefta frama hans. Hann hlaut vitaskuld að eignast marga óvildarmenn vegna gagnrýni sinnar á fákunnáttuna. Þessi gagnrýni hans á samtíðina, kom víða fram í blaða- greinum hans og ritgerðum. Megingagnrýnin beindist að tímasóun og óþarfa erfiði í siglingum og lélegri kennslu foringjaefna. Hann benti á liðsforingjaskóla landhersins, West Point, sem fordæmi fyrir flotann til að fylgja, og lagði til að flotinn kæmi sér á fót stofnun af svipuðu tagi, það er flotaakademíu. Af þessum ástæð- um er Matthew Fontaine Maury nefndur réttilega „faðir bandaríska flotaháskólans“, meðal annarra fjöl- margra verðskuldaðra titla og heiðurs, sem nafn hans nú nýtur. Vinsældir greina hans og athuganir leiddu athygli nokkurra áhrifamikilla manna að honum og þeir lögðu til, að hann hlyti embættið „Secretary of the Navy“. Enda þótti forsetinn sjálfur, sem þá var John Tyler, væri Maury velviljaður, fengu öfundarmenn hans og þeir sem hann hafði stigið á tærnar á með skrifum sínum, því ráðið, að hann hlaut ekki þetta embætti. I stað þess varð hann yfirumsjónarmaður með stofnun, sem síðar hlaut nafnið „bandaríska haffræðistofnunin“, en var á þessum dögum korta og siglingatækjastofnun. Það fór svo, að þetta varð upphafið að þeim ferli Maurys, sem leiddi til viðurkenningar allra siglingaþjóða á hon- um og starfi hans og olli því, að nafn hans er letrað gullnum stöfum í sjóferðasögunni. Hin frjóa og skapandi hugsun hans hafði nú hæfi- legt verk að vinna, hann tók að róta í ýmsu dóti, sem starfsfélagar hans höfðu haldið einskisvirði. Hann rót- aði til í öllum skúmaskotum deildarinnar og gróf upp fjársjóði af upplýsingum úr rykföllnum leiðarbókum, sem hann fann í stöflum á hinum ólíklegustu stöðum. Þarna var að finna upplýsingar, sem gátu orðið mönn- um, sem voru að leggja upp í sína fyrstu langferð, Hafrannsóknarstofnunin í Washington ca. 1850. SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 37

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.