Sjómannadagsblaðið - 01.06.1992, Blaðsíða 105
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
103
Enginn maður nema Sveinn Bene-
diktsson mun hafa komið víðar við í
sjávarútvegsmálum samtíma síns en
Loftur Bjarnason.
Mest var Loftur reyndur í löndun-
arbanni Englendinga 1952-56. Loft-
ur og Þórarinn Olgeirsson voru þá í
fararbroddi við að leysa það bann
ýmist í samningaumleitunum eða til-
raunum til að brjóta það.
Beinteinn Bjarnason og
Óskar Jónsson
Beinteinn Bjarnason hóf útgerðar-
og fiskverkun 1931 og var mikill út-
gerðarmaður og fiskverkandi um 20
ára skeið, og á síðara hluta þriðja
áratugsins gerði Beinteinn út línu-
veiðarann Jökul, síðar, 1942, rak
Beinteinn síldarverksmiðju á Ing-
ólfsfirði. Beinteinn var frumkvöðull
að skreiðarverkun á Kreppuárunum.
Ekki má gleyma Oskari Jónssyni í
Kreppurekstri Hafnfirðinga. Oskar
Jónsson ritaði sögu sína „Á sævar-
slóðum og landleiðum" 1956. Hann
fluttist að vestan 1931 og varð fljótt
umsvifamikill í Hafnarfirði, sem fisk-
verkandi og bæjarmálamaður og fé-
lagsmála á landsvísu. Var í stjórn
Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna,
Skreiðarsamlagsins, (stofnaði það),
Utgerðarráði Bæjarútgerðarinnar og
í Síldarútvegsnefnd. Mest umsvif
hafði Óskar á fimmta og sjötta ára-
tugnum.
Ýmsir aðilar
í togaraútgerð sinni dugðu Hafn-
firðingum ekki Venus, Garðar og
Maí til að fylla í skarðið eftir Hell-
yers.
Togarinn Sviði hafði verið keyptur
1926 frá Englandi af þeim Ásgrími
Sigfússyni, Þórarni Egilssyni o.fl.
Það félag hét Sviði hf. Sviði reyndist
gott aflaskip.
Sindriy áður Víðir, Víðisfélagið
hafði selt þann togara Sindrafélaginu
hf., togarinn var gerður út frá Hafn-
arfirði þar til 1933.
Rán var áfram í útgerð í Hafnar-
firði til 1935. Loks er svo að geta að
Bæjarútgerð Hafnarfjarðar, sem
stofnuð hafði verið í febrúar 1931,
keypti togarann Maí af þrotabúi ís-
landsfélagsins. Þá hafði Hafnfirðing-
um bætzt 3 togarar, Venus, Garðar
og Maí til að fylla í skarðið eftir Hell-
yers. Árið 1932 keypti Samvinnufé-
lagið Haukanes, togarann Njörð og
skírði hann Haukanes, og Bæjarút-
gerðin keypti 1934, frá Englandi,
togarann Júní og 1933 var Sindri seld-
ur úr bænum, og 1934 strandaði
Walpone. Árið 1938 keypti útgerðar-
félagið Hrafna-Flóki hf. togarann
Óla Garðar og hann gekk frá Hafn-
arfirði.
Togarar, sem gengu frá Hafnar-
firði 1930-1940 voru 9 talsins til jafn-
aðar.
Hafnfirðingum bættist því aldrei
þann áratug að fullu í togaraútgerð-
inni brottför Hellyers, en þeir bættu
sér það sem á vantaði með stórauk-
inni útgerð línuveiðara og vélbáta.
Línuveiðaraútgerð Hafnfirðinga
var mikil á Kreppuárunum. Línu-
veiðara gerðu Hafnfirðingar út á lóð-
ir á vetrum, en síld á sumrum og þeir
áttu jafnan mikinn síldveiðiflota, því
að þeir gerðu togara sína, Surprise,
Garðar og Ránina og Sviða út á síld.
Af línuveiðurum Hafnfirðinga má
nefna að voru fyrir norðan á síld á
Kreppuárunum: Örn (áður Péturs-
ey), Papey, Sæfarinn, Málmey,
Bjarnarey (áður Ölver), Pétursey
(áður Paul).
Allt voru þetta skip um 100 tonn.
Þess er að geta um útgerð línuveið-
ara á Kreppuárunum að það var mik-
il hreyfing á þeim skipum stað úr stað
og skiptu títt um eigendur. Útgerð
þeirra reyndist misjafnlega. Þetta
voru yfirleitt gömul skip.
Eins og fram er komið áttu Hafn-
firðingar marga all-stóra vélbáta á
þessum tíma og gerðu þá út á síld, en
á vetrum úr nærliggjandi höfnum oft
Sandgerði, sem lágu betur við mið-
um en Hafnarfjörður.
Einn bátur, Njáll, sem Magnús
Guðjónsson átti, stundaði þó land-
róðra úr Hafnarfirði á þessum árum.
Þannig lifðu Hafnfirðingar af
þessa miklu kreppu, eins og þeir
lifðu af öll sín áföll í sviptingssömum
tíma, þegar ísland var að rísa úr
öskustónni. Og verður sagan þá ekki
rakin lengra. Hún er orðin úr þessu
fersk fyrir Hafnfirðingum og gefur
ekki tilefni til upprifjunar.
ÚTGERÐARÐ OG AFLI
HAFNARFJARÐARÚTGERÐAR 1990
amkvæmt ársriti Fiskifélags-
ins, Útvegi, hafa verið gerðir
út frá Hafnarfirði árið 1990
þessi fjöldi báta og skipa:
28 þilfarsbátar undir 12 tonnum,
síðan 9 vélbáar, 2 undir 50 tn. 5 bátar
50-200 tn, 2 skip yfir 200 tn, 3 skut-
togarar undir 500 tonnum og 4 yfir
500 tonnum. Opnir bátar hafa reynst
óteljandi fyrir ritið og ekki getið tölu
þeirra, enda skipta þeir hundruðum.
(Eru um tvö þúsund í landinu öllu.)
Afla sinn hafa Hafnfirðingar land-
að svo árið 1990: (Allar tegundir þar
með loðna).
Heimalandanir 7334 tonn, landað
í öðrum stöðum innanlands 19543 tn.
Sjófryst 20.300 tn. Landað erlendis
1756 tn. Gámafiskur 1290 tn. og alls
er þetta 50223 tonn, og er það nær 3
þús. tonna minni afli en 1989.