Eimreiðin - 01.04.1925, Page 61
E,MREIDIN
TVÆR SÖNGVÍSUR
157
»Þér unni ég — enn sú ást er þín;
hjá eilífð þú bíður og verður mín.«
Hulda þvddi.
Vélgengi og vitgengi.
Svo er um andlegar stefnur sem um öldur sjávar, að hvor-
^ftveggja fæðast og falla á víxl. Ný alda rís er önnur hnígur.
^áttúruhyggja sú, sem mestu réði í hugum manna fyrir og
síðustu aldamót, hefur nú lifað sitt fegursta. Hörð barátta
hafði staðið í vísindaheiminum um þá skoðun, hvort náttúran
Ef]órnaðist af vélrænum öflum án vitsmunaafls að baki, eða
ávort vitsmunalegur tilgangur réði í rás lífsins. Þessi barátta
Utri vélgengi og vitgengi lífs var bæði löng og hörð. Að lok-
UtT1 sigraði vélgengisstefnan um stundarsakir. Á Englandi
uófðu þeir Stuart Mill og Huxley rutt braut hugsanafrelsi og
r°fið aldagamla múra íhalds og einangrunar. í Þýzkalandi
Uofst efnishyggjuöld eftir að Haeckel hafði rutt kenningum
uarvvins braut í þýzkri heimspeki. Og í Frakklandi fengu vél-
2engiskenningar Descartes nýjan byr í seglin. Öll hugsun í
Ue>nispeki og vísindum beindist frá takmarkshyggju þeirri,
e^a tilgangsskýringu á náttúrunni, sem réði mestu í náttúru-
v>sindum fyrri hluta nítjándu aldar. Hin uppvaxandi kynslóð
Uattúrufræðinga svalg í sig kenningar Herbert Spencers. Þeir
|°ku v;g heimspeki hans og líffræði eins og nýjum fagnaðar-
°ðskap. Lífsskoðun bæði lærðra manna og leikmanna um
Uafe3a allan siðaðan heim mótaðist um eitt skeið af kenn-
lu2um hans. En nú gætir áhrifa Spencers ekki lengur. Saga
Uattúruvísindanna geymir nafn hans, en kenningar hans hafa
efdd það vald yfir hugum manna sem áður.
Það er erfitt að segja um það, hvenær afturkastið hófst
ra efnishyggju og vélgengi til andlegrar og tilgangslegrar
s^ýringar á tilverunni. I rauninni er ekki rétt að kalla þá
sfefnubreytingu afturkast, því hún var meira. Hún kom fram
aIveg nýrri mynd, og lítur út fyrir, að hún ætli að brúa til