Eimreiðin - 01.04.1925, Blaðsíða 80
176
FERÐ UM MIÐSVÍÞJÓÐ
EIMREIí’11'1
ursta sænsku, t. d. bækur eftir Selmu Lagerlöf eða AuguS*
Strindberg, svo að ég nefni sinn höfundinn frá hvorri aðalstefn"
unni. Auk þess má nefna, að Svíar eru eina Norðurlanda'
þjóðin, sem gefa út nokkuð að ráði af vísindalegum bókun1’
meira eða minna alþýðlegum.
Ef kensla í sænsku væri tekin upp við einhvern skólanU’
helzt kennaraskólann, til að breiða kunnáttuna sem víðast,
bókasöfnin öfluðu sér sænskra bóka, væri eitt skref tekið $
að færa ísland nær Evrópu með hægu móti og lítilli fvrir'
höfn, og þá fyrst og fremst nær þjóð, sem að menningu °S
andans aðli má teljast stórveldi.
Helgi P. Briem■
Lífgjafinn.
Eftir IV. U/. W/oodbridge.
(Niðurl.)
En hvað þér eruð vænn að hjálpa mér. Ætlið þér lauS*
að fara, sagði drengurinn.
Hvert ætlar þú með þessa bögla? spurði ég.
Hann sagði mér það.
Nú, það er einmitt þangað, sem ferðinni er heitið, sag^1
ég og lézt verða hissa. Svo héldum við áfram og fórum hra^
í þessari svipan fór að rofa til í lofti. Áður en við voruu1
komnir hálfa leið, gægðist sólin í gegnum skýjarofið,
drengurinn við hlið mér hló af fögnuði. Það ætlar að verð3
fyrirtaks veður á morgun, haldið þér ekki?
Eg skal, svaraði ég alveg úti á þekju.
Hann leit á mig steinhissa og hélt víst, að ég væri ekk1
með öllum mjalla. Hann ætlaði að fara að spyrja mig
einhverju, en svo hætti hann við það og hélt áfram þegja11^1
við hlið mér.
Þegar hann var búinn að skila af sér böglunum og var
kominn aftur út á strætið, spurði hann mig af barnslegri í°r'
vitni:
Segið mér, herra, hvar vinnið þér?