Eimreiðin - 01.04.1943, Blaðsíða 26
VIÐ IMÓÐVEGINN
EIMREIÐIN
km;
Mesta núlifandi skáld Breta.
Það mun vera nokkurn veginn einróma álit þeirra, sem
kunnugir eru enskum nútímabókmenntum, að Eliot sé mesta
skáld, sem nú er uppi í Englandi. Þó mun hann mjög lítið
kunnur hér á landi. Vér íslendingar hötum til skamms tíma
verið miklu ófróðari um enskar samtíðarbókmenntir heldur en
t. d. danskar eða norskar, þó að samgöngur við Bretlandseyjar
héðan hafi verið meiri um langt skeið en við meginlandið.
Það er sagt, að vanans hlekkir séu seigir, — og um langt skeið
fengum vér nálega öll vor kynni af erlendum bókmenntum,
listum og vísindum, yfir Kaupmannahöfn. Auk Norðurlanda-
bókmennta urðu það því eðlilega þýzkar bókmenntir, sem mest
gætti hér á landi. Reyndar voru það ekki andlegu málin ein
fremur en t. d. verzlun og viðskipti, sem varð að ganga um
hendur umboðsmanna úti í Kaupmannahöfn, áður en þætti inn-
flutningshæft hér. Það er ekki ólíklegt, að hér sé að leita or-
sakanna til þess, hve ensk samtímaskáld urðu oft síðla kunn
hér á landi í samanburði við skáld Norðurlanda og Þýzkalands.
Þegar greinarnar um skáldin john Millington Synge, Joseph
Conrad, Cordon Bottomley, john Masefield o. fl. voru að birt-
ast hér í Eimreiðinni á árunum 1924—1932, var fundið að því
oftar en einu sinni, hvers vegna Eimreiðin birti ekki heldur
greinar um norræn og þýzk skáld heldur en um skáld frá Bret-
landseyjum. Þessar aðfinnslur komu vel heim við þann anda,
sem ríkti meðal sumra islenzkra menntamanna allt fram á
árin um og eftir siðustu heimsstyrjöld. Það voru hinir gömlu
hlekkir vanans, sem þarna glamraði í, hinar gömlu, troðnu
slóðir, sem sjálfsagt þótti að feta. Nú er þetta allt orðið breytt,
eins og kunnugt er.
Eliot er bæði víðkunnugt Ijóðskáld og meðal merkustu gagn-
rýnenda, sem nú eru uppi. Hann hóf rithöfundarferil sinn árið
1909 eða um likt leyti og fjögur önnur skáld, sem öll urðu
nafnfræg með enskumælandi þjóðum, ameríska skáldið Ezra
Pcund, írinn James Joye og ensku skáldin D. H. Lawrence og
Virginia Woolf. Eliot stundaði nám við Harvard háskólann í
Bandarikjunum og í Oxford á Englandi, varð heiðursdoktor í
bókmenntum (Hon. D. Litt.) árið 1939, hefur ritað fjölda bóka,
og eru meðal þeirra: ,,The Waste Land", ,,The Sacred Wood'