Eimreiðin - 01.04.1943, Qupperneq 72
KIMKEIÐIK
Bandaríki Evrópu.
Eftir dr. C. M. Franzero.
[I timaritinu „World Review", sem út kemur i London, útgefið af
„Review of Revicws" Ltd. og arftaki liins nafnfræga tímarits „Review. of
Reviews", sem William Stcad stofnaði 1890 og var ritstjóri að i meir en
tuttugu ár, iiafa undanfarið birzt- greinar eftir ýmsa nafnkunna rithöf-
unda og stjórnmálamenn um framtiðarskipulag Evrópu. Níunda greinin
í þessum greinaflokki er sú, sem hér fer á eftir í islcnzkri þýðingu. Höf-
undur licnnar, C. M. Franzero, cr italskur ritliöfundur og blaðamaður,
sem um alllangt skeið hcfur dvalið í Englandi. Hann cr frclsisvinur mikill
og þjóðræðissinni, jafnframt því sem liann er nafnkunnur skáldsagna-
böfundur. Undirfyrirsögn greinarinnár er Fyrsta skrefið er viljinn til
að skilja Evrópu, og ræðir i henni ýmis mikilvæg sjónarmið, sem liljóta að
koma til athugunar við framkvæmd ])ess vandasama hlutverks að koma
á stofn skipulagsbundnu ríkjasambandi frjálsra þjóða upp úr öngþveiti
yfirstandandi stvrjaldar. — Rilstj.]
Vinur minn og ég rökræddum nýlega um viðfangsefnið:
framtíðarbandalag Evrópu. ið rædduin um þetta fram og
aftur, og mér varð að orði: „Þar sem ég er italskur, hættir
mér til að lenda uppi í skýjunum, því að draumóramenn er-
um við Italir. En við erum lika raunsæismenn í aðra röndina,
og mér er ekki hægt að láta hugsjónaákafann hlaupa svo
með mig í gönur, að ég sjái tómar ofsjónir.1- þjg held, að hug-
sjónin um Bandariki Evrópu eigi ákaflega langt í land til að
verða veruleiki.
Ekkert væri auðvitað æskilegra frá almennu sjónarmiði
en að á kæmist allsherjarbandalag allra ríkja í Evröpu. Með
slíku bandalagi mætti leysa öll stjórnmálaleg og efnahagsleg
vandamát, sem þjáð hafa þjóðir Evrópu undanfarið. Eng'in
Evröpuþjóð er eða verður nokkurn tíma sjálfri sér nóg. Og'
engin er eða hefur nokkru sinni orðið nægilega voldug til að
sigra allar hinar og uppræta þær.
En jiegar ræða skttl um slíkt bandaíag sem þetla, verður
fyrst og fremst að gera sér þess grein, hvað sé átt við með
orðinu Evrópa. Er t. d. Rússland Evrópuriki allt og óskipt,
eða eigum við að einkenna það þannig' að telja það eins