Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1951, Page 114

Eimreiðin - 01.07.1951, Page 114
226 DANSKT HERVALD GEGN ÍSLENZKUM EIMREEÐIN hann nú hnakkakertur aftur vestur í átthagana og þóttist nú hafa komiS ár sinni vel fyrir borð og hældist jafnvel um. En yfirvöldunum þótti Gísli hafa sloppið helzt til vel við refsinguna og grunaði, að ekki numdi allt með felldu um veikindi hans. Átti nú enn að taka Saurabóndann og færa hann til hegningar. En nú liafði Gísli allur færzt í aukana við vel- gengnina. Hann vísaði öllum slíkum kröfuni á bug með fyrir- litningu og hauð sýslumönnum og amtsyfirvöldum byrginn. Hver leiðangurinn á fætur öðrum er gerður út til að handtaka þennan eina mann, en allt kemur fyrir ekki. Gísli smýgur stöð- ugt um greipar réttvísinnar. Hann liefur úti njósnir eins og liöfðingjar Sturlungaaldarinnar, og hann er jafnan var um sig og viðbúinn heima á bæ sínum eins og þeir, sem sökótt áttu til foma. Þegar erindrekar laganna ríða að honnm sem snúðug- legast, er fuglinn alltaf floginn, og kvenfólk hans skvettir stækri keitu í augun á valdsmönnunum. Illkvittnishláturinn ískrar niðri í sauðsvörtum almúganum, en yfirvöldin klóra sér í höfði og bölva í hljóði. Mannorð þeirra og embættisæra hanga á hlá- þræði, virðing laganna og vald réttvísinnar em í veði. Hvað á að gera við þennan baldna karlskratta þama inni í Dölum, sem hvorki er hægt að hýða, sekta eða setja í tugthúsið? EitthvaS verður að gera, það er deginum ljósara. V. Nótt eina í júní skríður bátur inn Hvammsfjörð. Hátt er til lofts og vítt til veggja í liásumardýrð þessa friðsæla fjarðar. Vogamir iða af æðarfugli, forvitnir kópar stinga upp hausnum í kjalsoginu. En hátverjar veita unaðssemdum vomæturinnar litla atliygli. Ræðararnir leggjast knálega á árarnar, og fátt er talað. Allt em þetta vasklegir menn, einvalalið. En livað er þetta? Ekki getur farið hjá því, að tveir þeirra dragi alveg sérstaklega að sér athyglina, því að þeir eru í búningi danska sjóhersins, gráir fyrir járnum og munda byssuhólkana. Þetta em „soldátar“ af herskipinu Diönu, sem liggur úti á Stykkis- hólmshöfn. Þeir era ef til vill liálf-fýldir á svipinn yfir þessu ferðalagi um hánótt, en þó má búast við ævintýri, því að þeim
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.