Eimreiðin - 01.01.1955, Blaðsíða 15
eimreiðin
VIÐ ÞJÓÐVEGINN
3
Á sama tíma, sem þessi og önnur veikleikamerki gera vart
við sig út á við, magnast átökin inn á við milli flokka og stétta,
svo að til vandræða horfir, og er skemmst að minnast í því efni
þei rra sífelldu deilna og verkfalla, sem staðið hafa það, sem af
er þessu ári, en ástand þetta hefur þegar bakað þjóðinni stór-
tjón, bæði fjárhagslegt svo milljónatugum króna skiptir og þá
jafnframt lamað getu þjóðarinnar til þess að sjá sjálfri sér borgið
sem fullvalda ríkisheild. Fyrir þessu er ekki hægt að loka aug-
unum.
I íslenzkum þjóðsögum er ævintýri um skessur tvær, sem höfðu
Það að leik að henda á milli sín fjöregginu sínu. Þessum leik
iauk með því, að fjöreggið brotnaði, en skessurnar báðar ultu um
!eið út af með froðufalli og voru þegar dauðar. Skessuleikurinn
Um fjöreggið er enn leikinn í íslenzkum ævintýrum. Stundum er
sá leikur svo grár, að það er fjöregg sjálfrar þjóðarinnar, sem
leikið er með. IVIenn höfðu vonað, að skessurnar væru dagaðar
uPPi. Svo er þó ekki. Þær láta óspart til sín taka í flokkadrátt-
Urn og sundurlyndi, þrátt fyrir góðáran til lands og sjávar frá
gjafmildri hendi forsjónarinnar. Þær leika sér allt of oft með
fjöregg þjóðarinnar. Sjáum um, að þær hætti þeim leik með öllu
°g öagi sjálfar uppi í árljóma þeirrar nýju aldar, sem hófst með
endurheimtu fullveldi voru.