Eimreiðin - 01.01.1955, Blaðsíða 59
E'MREI6IN
ÓLÝGINN SAGÐI MÉR
47
Móðirin ypptir öxlum. „Hvaðan kemur vindurinn? Huh.
‘ ■ • Lað er víst ekki auðhlaupið að því að reikna það út!
að ber það ekki í mig — blessað fólkið — ónei! Því var
ambt á krakkagarminn, hana Siggu. Stelpan bakarans
Póttist vist eitthvað þurfa að hefna sín. Það stóð ekki á svar-
lnu- þegar Sigga spurði, hver hefði sagt þetta: — Þetta segja
sllir! — Sigga ræfillinn kom heim hágrenjandi."
Roðinn er horfinn úr kinnum Dóru. Hún sezt niður, —
0rfir út um gluggann. Svo segir hún lágt:
,,Svei — hvað þetta er andstyggilegt!"
Hún er búin að missa lyst á kaffinu og kleinunum, en
®úur lengi hugsi á eldhúskollinum og skoðar á sér neglurnar.
°ðir hennar dútlar við potta og pönnur úti í horni.
Loksins stendur Dóra upp. Hún gengur til móður sinnar,
appar á kinnina á henni og segir:
»Allt í lagi, mamma! — Látum kerlingarnar kjafta eins
°S þær vilja. Mér er skítsama. Þær skulu meira að segja fá
að kjafta ennþá meira! Nú veit ég, hvað ég geri!“
Enn líða nokkrír dagar, og lífið gengur sinn silalega seina-
fanS, eins og vant er. Það er orðið áliðið sumars, og síldin
efur brugðizt að mestu leyti, enda oftast bræla á miðunum.
átarnir með nokkur hundruð mál og talað um að hætta
1 næstu viku. Lítið að gera í þorpinu og nokkrir unglings-
Piltar komnir suður á „völl“. Karlarnir sitja heima, lesa
^lrnann eða Isafold, banka barómetið og fá sér í nefið.
egar uppstytta er, rölta þeir niður á bryggju. Þeir eru hálf-
eirðarlausir, karlagreyin. Síldin, þessi fallegi, en hverflyndi
lskur, er efst í huga þeirra. 1 lengstu lög er vonað og treyst
a fPnglkomur, strauma, áttabrigði eða jafnvel messurnar í
alrnanakinu. En allt kemur fyrir ekki.
Karlarnir heyra útundan sér eldhúsumræður kvennanna.
1 °kkrir láta þær sem vind um eyrun þjóta, en þó eru hinir
miklu fleiri, sem hafa gaman af að staldra við í eldhúsinu,
a sér dropa og leggja orð í belg. Fáeinir smitast svo af hinum
lennandi fróðleiksþorsta „betri helmingsins", að þeir láta
lafnvel síld vera síld og gleyma hversdagsáhyggjunum í hita
eldhúsumræðnanna.