Eimreiðin - 01.01.1955, Blaðsíða 45
Gullgerðarlist hin nýja.
■Nú eru bráðum tíu ár síðan fyrstu atómsprengjunni var varpað.
Það gerðist í Japan, og það var borgin Hiroshima, sem fyrir
sPrengjunni varð, með þeim hryllilegu afleiðingum, sem öllu
^annkyni eru kunnar.
Arið 1939 var sú uppgötvun gerð, að með því að láta rafneindir
(neutrons) sprengja úraníumatóm, mætti leysa úr læðingi óhemju
°iku. Þessi uppgötvun var notuð í síðustu heimsstyrjöld til þess
að tortíma heilli borg og binda enda á styrjöldina. En atómork-
Una naá einnig nota í þágu hins góða og gagnlega — og það er
ein_rnitt þetta, sem nú er verið að koma í framkvæmd.
I einu pundi af frumefninu úraníum er jafnmikil orka varðveitt
°S í 1300 smálestum af kolum, en þyngd þessa kolaforða er um
^að bil þrem milljón sinnum meiri en úraníum-pundsins. Auk
^ess á atómorkan yfir að ráða geislavirkum eindum, sem nefnast
samsætur (isotopes), en þær geta orðið mannkyninu til jafn-
^rikillar blessunar og sjálf atómorkan, ef rétt er að farið.
Orka er undirstaða allrar hreyfingar og starfs. Hún er mismun-
Urinn milli hlutar í hreyfingu og kyrrð, mismunurinn milli sjóð-
andi gufu og kalds vatns, milli brennandi kola og grjóts. Orka
er bæði ósýnileg og óáþreifanleg, en þó orsök alls, sem gerist í
efnisheiminum.
Menn og dýr fá orku úr fæðunni. Með þeirri orku vinna erfiðis-
^enn í sveita síns andlitis, til þess að hafa í sig og á. En aðrar
°rkulindir eru til dæmis eldsneyti, sól og vindur. Því þroskaðra
•ðnþjóðfélag sem um er að ræða, þeim mun fjölbreyttari verða
orkulindir þess að vera. í Bandaríkjum Norður-Ameríku er til
á*mis orkueyðslan á mann 172000 hitaeiningar. En það er um
Sextíu sinnum meiri orka en mannsorkan ein. í þeim löndum,
sem svipað er ástatt um, hefur því hvert mannsbarn jafngildi
starfsorku sextíu manna, til þess að vinna fyrir sig.
Orkulindir jarðarinnar, svo sem olía, gas og kol, fara sífellt
^innkandi. Talið er að kol í jörðu muni ekki endast lengur en
fáeinar aldir. Eftir að atómorkan kom til sögunnar hafa vonir
3