Eimreiðin - 01.01.1963, Page 8
H.f. Eimskipafélag Islands
AÐALFUNDUR
Aðalfundur H.f. Eimskipaíélags íslands verður haldinn í fundar-
salnum í húsi félagsins í Reykjavík, föstudaginn 3. maí 1963 og hefst
kl. 1.30 eftir hádegi.
1. Stjórn félagsins skýrir frá hag Jsess og framkvæmdum á
liðnu starfsári og frá starfstilhögun á yfirstandandi ári,
og ástæðum fyrir henni, og leggur fram til úrskurðar end-
urskoðaða rekstursreikninga til 31. des. 1962 og efnahags-
reikning með athugasemdum endurskoðenda, svörum stjórn-
arinnar og tillögum til úrskurðar frá endurskoðendum.
2. Tekin ákvörðun urn tillögur stjórnarinnar um skiptingu
ársarðsins.
3. Kosning fjögurra manna í stjórn félagsins, í stað þeirra
sem úr ganga samkvæmt samjrykktum félagsins.
4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess er frá fer, og eins
varaéndurskoðanda.
5. Tillögur til breytinga á reglugerð Eftirlaunasjóðs H.f. Eim-
skipafélags íslands.
6. Umræður og atkvæðagreiðsa um önnur mál, sem upp kunna
að verða borin.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og urnboðs-
mönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík, dagana 29. apríl
til 2. maí næstkomandi. Menn geta fengið eyðublöð fyrir umboð til
þess að sækja fundinn á aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík. Óskað
er eftir að ný umboð og afturkallanir eldri umboða séu kornin skril'-
stofu félagsins í hendur til skráningar, ef unnt er, viku fyrir fundinn.
Reykjavík, 12. febrúar 1963.
STJÓRNIN.