Eimreiðin - 01.01.1963, Page 52
40
EIMREIÐIN
heima hjá föðurafa sínum, sem
telpan fann Njálssögu í norskri
jrýðingu og segir það hal'a verið
einn af merkisviðburðum ævi sinn-
ar. Hún flýtti sér hvern morgun að
ná í bókina, komast út á tún og
taka til við lesturinn. Allir at-
burðirnir stóðu henni svo lifandi
fyrir hugskotssjónum, að henni
leið stundum illa, einkunr sá hún
Skarphéðinn ljóslifandi fyrir sér.
íslendingasögur voru henni hjart-
fólgnar og uppspretta sumra rit-
verka hennar.
Eftir andlát eiginmanns síns
barðist frú Undset í bökkum með
jtrjár dætur og var Sigrid jreirra
elzt. Eftir miðskólapróf var henni
boðin ókeypis skólavist til stúdents-
prófs, en henni fannst hún ekki
geta jtegið j>að, fyrst og fremst
vegna jtess að hún gat ekki fellt sig
við skoðanir Jrær, sem skólastjór-
inn barðist fyrir. Hún fór Jtví í
verzlunarskóla og frá Jreirri vist
skrifaði hún sænskri jafnöldru
sinni, sem hún hafði tekið upp
bréfasamband við:
„Skaplyndi mínu er svo farið, að
ég er mikillát og hégómleg, hélt
einu sinni að ég væri greind, var
enda talin jrað í skólanum, en af-
sanna jtað með öllu á verzlunar-
skólanum, sem ég nú sæki. Fyrst
átti ég að stúdera, en vildi jtað
ekki og var svo stungið inn hér,
jrar sem jreir eru að gera útaf við
mig.“
Þó að prófið úr verzlunarskól-
anum væri ekki glæsilegt, j>á fékk
Sigrid skrifstofustöðu með aðstoð
góðra vina og hóf sextán ára göm-
td starf, sem hún stundaði í rösk
tíu ár. Henni leiddist skrifstofu-
vinnan, en skaraði sarnt framúr
starfsfélögunum, ekki sízt vegna
|>ess hve frábært minni hún hafði.
Hún kynntist nýju fólki og nýjum
lífsskilyrðum gegn unr starfið, hún
las mikið og byrjaði að skrifa. Ar-
ið 1904 eða 5 fór hún með fyrsta
skáldsöguhandrit sitt til útgefanda.
Þetta var skáldsaga frá miðöldum
og útgeíandinn neitaði að taka
hana og sagði Sigrid að skrifa eitt-
hvað nýtízkidegra. Henni rann í
skap, fór heim og settist við að
skrifa söguna „Frú Martha Oulie“.
Sú saga kom út 1907 og einn gagn-
rýnandi sagði, að upphafsorðin lof-
uðu góðu, en þau eru: Ég hef ver-
ið manni mínum ótrú.
Þegar Sigrid Undset var sjálf ör-
ugg um rithöfundarhæfileika sína,
sagði hún upp skrifstofustarfinu.
1909 l'ékk hún ferðastyrk l'rá rík-
inu og fór til Rómaborgar með við-
komu í Þýzkalandi. í Róm kynnt-
ist hún listmálaranum Svarstad,
sem síðar varð eiginmaður hennar.
Arið 1911 gaf hún út söguna
„Jenny“, sem vakti mikið umtal og
Jrótti ósiðleg. Kvenréttindafélag
hafði um hana umræðufund og
urðu umræður æði svæsnar og var
höfundurinn sú eina, sem ekki
glataði ró sinni, enda kvaðst hún
ekki hafa búizt við öðru. En þó
blandaðist engum lengur hugur
um, að í Noregi væri komin fram
ný skáldkona, sem telja yrði með
stórskáldum.
Þetta sama ár giftist Sigrid Svar-
stad og fluttist til útlanda, fyrst til