Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1963, Side 40

Eimreiðin - 01.05.1963, Side 40
128 EIMREIÐIN inn í háskólann í Kaupmannahöfn eins og beztu latínuhestar. Móti útlendum gestum tóku prestarnir landinu til sóma. En oft var svo að þessir ágætu prestar utan kirkju virtust minnka, þegar þeir stigu í stólinn, eins og þeir væru þar ekki á réttri hillu í lífinu. Gátu mörg rök runnið undir það. Prestar eru þjónar Hinnar heilögu almennu kristilegu liirkjuf og hún agar þá strangt, því að hún er siðavönd mjög. Sést það bezt, ef við berum saman í eina hrúgu allar hempurnar, sem hún hefur rifið af þjónum sínum fyrir óskírlífi þeirra. Það yrði sjáandi dyngja. Eða ef við tínum saman allar villur í kirkjubókunum, sem þar eru komnar til þess að bjarga hempunum og skinhelginni, þá yrðu allar ættartölur fslendinga alveg snarvitlausar. Við göngum á fund Sögu, það er gömul kona hérna á heimilinu, og spyrjum hana, því að hún er fjölfróð og sannorð, elskuð og virt af öllum. Hvaðan er Hin heilaga almenna ættuð? spyrjum við. Hún getur rakið ætt sína til Austurlanda nær og í sumum grein- um til Austurlanda fjær og til Egyptalands, sagði Saga. Segðu okkur sögu hennar! Eigi er hún í flýti segjandi. Langa á hún ævisöguna og merkt- legri en flest annað. Mikil hefur hún alla tíð verið fyrir sér og oft haft mikil völd og mikinn auð undir höndum. Nú hefur mjög gengið af henni og hún sjálf orðin fyrirgengileg og þreytuleg. Sýn- ist mér lnin ætti nú að kasta ellibelgnum og endurfæðast ennþa einu sinni. Hversu komst hún að þessum fádæma auði? spyrjum við. Það var í páfadómi að hún var auðugust. Munaði mestu í fyrstn um kirkjutíundina. Þá var það háttur kristinna manna að gef3 kirkju fyrir sálumessu vegna framliðinna vina og vandamanna- Gáfu ríkir menn oft miklar gýligjafir, stundum aleigu sína á dán- ardægri. Þá sungu prestar margar messur fyrir sál hins liðna. Komst þá sálin yfir hreinsunareldinn lítið brennd, aðeins ofurlítið sviðin- Þaðan flaug hún svo beina leið í skaut Abrahams forföður Gyð' inga. Þá var hún hólpin. Nú gat hún sungið í samfélagi heilagTa' Hallelúja — hallelúja — ha-le-lú-ja! Og þetta um alla eilífð. Anna$ hafði hún ekki að gera. Trúir þú þessu, Saga? Engu skiptir, hverju ég trúi, sagði Saga íbyggin. Ég segi aðein* frá því, sem aðrir trúðu, sögðu og gerðu.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.