Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1963, Side 82

Eimreiðin - 01.05.1963, Side 82
170 EIMREIÐIN bréf, mundi hann ekki hafa farið svona leynt með það, En hann vildi ekki, að hún vissi, að hann væri farinn að lesa biblíuna. Enn minntist hún ekki á neitt við Svein. Morguninn eftir var biblían á sínum stað. En á hverju kvöldi heyrði lnin gengið um stofuna, og alltaf bjó hún svo um, að hún sá, ef biblían hafði verið hreyfð. Og það brást aldrei. Þannig liðu fjór- ir dagar. Var Stjáni ekki eitthvað öðru- vísi en hann átti að sér? Aldrei hafði hann verið skrafhreifinn, en þó fannst móður hans hann þögulli en endranær. Hafði drengurinn, svona kornungur, orðið fyrir ein- hverjum vonbrigðum og leitað sér athvarfs í trúnni? Óhræsis stelp- urnar þarna niðri í Víkinni! Voru þær nú farnar að leggja snörur fyrir drenginn hennar svona ung- an? Tæpra sautján ára! Fimmta kvöldið kom Kalli í Vogi og bað Stjána blessaðan að koma í knattspyrnu. Stjáni sagðist ekki nenna því. Þó var laugardags- kvökl. Einhvern tíma hefði Stjáni ekki talið það eftir sér í miðri viku. Geirlaug gat ekki borið þetta ein lengur og sagði Sveini allt saman, þegar þau voru háttuð um kvöld- ið. Og Sveinn varð öldungis for- viða. Hann sagði, að margur hefði nú orðið skotinn í stelpu, án þess að fá hana, og ekki sökkt sér nið- ur í guðsorð út af því. Ekki tekið guðsorð frarn yfir knattspyrnu. Og það á þessari spark- og spyrninga- öld! Þau ræddu þetta alvarlega hjón- in, og Sveinn sagðist ætla að grennslast eftir því hjá honum Manga þeirra, hvort Stjáni væri orðaður við nokkur kvennamál. Mangi bjó niðri í Víkinni. Sveinn átti erindi niður í Vík- ina á sunnudagsmorguninn. Og hann heilsaði upp á Manga. Þeir gengu um fjöruna í góðviðrinu og spjölluðu um sitt af hverju. Mangt minntist að fyrra bragði á Stjána, sagði, að hann væri orðinn dugn- aðarmaður. Sveinn greip tækifærið og spurði kumpánlega: „Heldurðu, að Stjáni litli sé nokkuð farinn að líta á stúlkurn- ar?“ „Ekki held ég það. Hann kann ekki einu sinni að dansa,“ svaraði Mangi. Þetta sagði Sveinn Geirlaugn um kvöldið. „Það er ekkert að marka,“ sagði hún. „Það eru einmitt þessir dulu rnenn sem verða þunglyndir.“ Rétt í þessu heyrðu þau gengið um stofuna og litu hvort á annað- „Taktu biblíuna úr skápnum a morgun," sagði Sveinn. „Við sktd- tim vita, hvort hann spyr efW henni. Þá gefst tækifæri til að tala við hann.“ Hún læsti biblíuna niðri í skúffu og geymdi lyklana vandlega. TveU dagar liðu. Enginn spurði neins, þó að biblían væri ekki á sinui® stað. Um nóttina var barið ákaft að dyrum, og Sveinn fór fram. Hann kom inn aftur, með miklu fáti, °S sagði, að saltskipið væri kornið-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.