Eimreiðin - 01.01.1965, Side 15
EIMREIÐIN
3
margbreytt að efni og við alþýðuhæfi, en ritstjórn þess virðist ekki
vera svo sýnt um slíkt sem æskilegt væri, því það flytur mestmegnis
fáai og langar ritgerðir um einstök efni, sem oft og einatt eru hálf-
' ísindalegar og lítt við almannaskap. Slíkar ritgerðir þurfa líka að
komast einhvers staðar að, ef þær eru vel samdar, en til vorkunnar
ma það virða, þótt alþýða manna trénist upp á þeim einum.
hegar þessa er gætt, virðist full þörf á nýju tímariti, er sé svo auð-
ugt °g margbreytt að efni, að það geti orðið hverjum manni til
skemmtunar og fróðleiks, og það er áform vort og von að oss takist
að gera rit vort svo úr garði, að það geti orðið sem flestum að skapi.
Rit vort mun flytja dóma um íslenzkar bækur, hvort sem þær
em góðar eða lélegar, og mun þar verða hlífðarlaust sagt til synd-
anna, hver sem í hlut á, en hins vegar heldur ekki dregnar dulur á
það, sem lofsvert þykir eða góðra gjalda vert. Mun og jafnan ann-
ast um, að þeir einir dæmi rit manna, er í engum vanda séu bundn-
u við höfunda, svo að eigi verði hætt við, að nokkur ritdómur verði
sprottinn af vináttu eða hatri. En auk innlendra rita mun og á
stundum getið ýmsra útlendra bóka, er að einhverju leyti þykja
þess verðar, að þeim sé eftirtekt veitt á Islandi.
Þótt góðir ritdómar geti stuðlað mjög að því, að bæta smekk
manna og fegurðartilfinning, eru þeir ]>é> engan veginn einhlítir í
því efni. Mun því rit vort eftir föngum flytja sýnishorn af innlend-
iun og útlendum skáldskap, og mun ritstjórinn gera sér far um, að
'elja ]>að eitt, sem vandað er að efni og búningi. Er jafnframt svo
td ætlazt, að ungir og elnilegir íslenzkir höfundar, sem nú eiga livergi
hælis að leita, síðan „Iðunni“ leið, geti í riti vom átt vísan sama-
stað fyrir kvæði sín og sögur. Má ætla að rit vort geti og í þessu efni
hætt úr brýnni þörf, bæði að því er snertir lestrarfýsn alþýðu og at-
hvarf fyrir unga höfunda.
Gieinar um landsmál mun ritið f'lytja, er þær að einhverju leyti
miða til sannarlegra þjóðþrifa, einkum um skólamál, heilbrigðis-
mál, atvinnuvegi ogsamgöngur. Aftur á móti liggur hin svo nefnda
„stórpólitík“ fyrir utan verkahring þessa rits, enda eiga þeir, sem
um hana vilja rita, vísa aðgöngu annars staðar, bæði í blöðum og í
„Andvara.“
I i itinu mun jafnan verða töluvert af skemmtandi og fræðandi
greinum, ýmislegs efnis. Munu þar meðal annars birtast smáritgerð-
ir um ýms atriði í menningarsögu íslands, og ennfremur mun stutt-
lega getið ýmra merkra uppgötvana og yfir höfuð skýrt frá því, sem