Eimreiðin - 01.01.1965, Qupperneq 20
8
EIMREIÐIN
upp eignum ritsins milli stofnenda þess í réttu hlutfalli við
stofnhluta hvers eins í upphafi, nema þeir vilji öðruvísi
ákveðið hafa.
4. að gera reikningsskil einu sinni á ári, og skal sá reikningur
endurskoðaður af tveimur mönnum, er forseti deildar „Hins
íslenzka bókmenntafélags" í Kaupmannahöfn tilnefnir í
hvert sinn.
5. að halda ritinu í þá stefnu, er segir í boðsbréfi því, er fylgir
nefndaráliti þessu.
Nefndin leggur ennfremur til að hverjum einuin, sem beðinn
er að styðja þetta fyrirtæki ineð fjárframlögum sé gert ljóst, að
hann geti aldrei gert kröfu til fjár síns aftur nema með því einu
móti að ritið hætti, án þess að féskorti sé um að kenna. Vill nefnd-
in jafnframt Iáta þess getið, að sú aðferð, sem hér hefur verið gert
ráð fyrir, er hin sama og höfð var við stofnun „Nýrra félagsrita.“
Kaupmannahöfn 18. september 1892.
Valtýr Guðmundsson.
1 G. Björnsson.
2 Bjarni Jónsson.
Frá því að þetta nefndarálit er gert hafa liðið rúm tvö ár þar til
boðsbréfið var sent út og Eimreiðin var stofnuð. Það verður því
ekki sagt, að flanað hafi verið að neinu og allur undirbúningur hef-
ur verið vandlega hugsaður.
Það hefur líka að sjálfsögðu verið margvíslegum vandkvæðum
bundið fyrir 70 árum að stofna til tímarits úti í Kaupmannahöfn,
rits, sem átti þó að mestu leyti að byggja afkomu sína á útbreiðslu
hér á landi. Og þó að ekki væri gert ráð fyrir nema 1000 króna stofn-
framlagi til útgáfunnar, kann það að hafa orðið tafsamt á þeim tím-
um að ná saman Jieirri fjárhæð, en Jretta mun þó hafa tekizt.
í ýtarlegri grein, sem Sveinn Sigurðsson, fyrrverandi ritstjóri Eim-
reiðarinnar, skrifaði í ritið árið 1925, þegar Eimreiðin var 30 ára,
er birt skrá yfir hluthafana, og skal hún ekki endurtekin hér, en
Jress aðeins getið, að Félagið nafnlausa er þar aðeins skráð með 2
hluti, eða 50 krónur, sem þó munu aldrei að fullu hafa greiðst.
í bréfasafni dr. Valtýs Guðmundssonar í Landsbókasafninu varð-
veitist eitt hlutabréf, en lorm þess er þannig:
!) Guðmundur Björnsson síðar landlæknir.
2) Bjarni Jónsson frá Vogi.