Eimreiðin - 01.01.1965, Qupperneq 26
14
F.IMREIÐIN
Ársæll Árnason gaf Eimreiðina nt í tæp sex ár undir ritstjórn
Magnúsar Jónssonar, en seint. á árinu 1923 seldi hann Sveini Sigurðs-
syni cand. theol. ritið og síðan var Sveinn ritstjóri og útgefandi
Eimreiðarinnar í rúm 32 ár, eða lengur en nokkur annar. Hefur
vissulega þurft til mikið þrek, árvekni og þrautsegju fyrir einn og
sama mann að standa svo lengi fyrir stóru tímariti og viðhalda reisn
þess og virðuleik í umróti mikilla breytingatíma, sem gengu yfir
íslenzkt þjóðlíf í ritstjórnartíð Sveins. Pað er geypimikið efnismagn
og margbreytilegt, sem Eimreiðin geymir frá ritstjórnartímabili
Sveins Sigurðssonar. Margt af því ritaði hann sjálfur, bæði um bæk-
ur og aðrar ritgerðir, en kunnastar urðu greinar hans „Við þjóðveg-
inn,“ sem var fastur efnisliður í Eimreiðinni, en það ern ýtarlegar
yfirlitsgreinar um þjóðmál og margvísleg málefni, sem efst voru á
baugi innanlands og utan. Auk þess birti Eimreiðin á þessu tíma-
bili skáldskap innlendra og erlendra höl'unda og ritgerðir ýmislegs
efnis eins og jafnan fyrr og síðar.
Um áramótin 1955—56 lét Sveinn Sigurðsson af ritstjórn Eimreið-
arinnar og seldi hana Félagi íslenzkra rithöfunda og nokkrum ein-
staklingum í því félagi, og var þá stofnað hlutafélag um útgáfuna.
Þá varð Guðmundur Gíslason Hagalín ritstjóri Eimreiðarinnar um
þriggja ára skeið, en Helgi Sæmundsson og Þorsteinn Jónsson (Þórir
Bergsson) voru í ritnefnd með honum fyrstu tvö árin, en þriðja árið
voru þeir Helgi og Indrðii G. Þorsteinsson meðritstjórar. Síðan
varð Þóroddur Guðnnindsson frá Sandi ritstjóri í eitt ár.
Fyrir finun árum, eða í ársbyrjun 1960, gerðist undirritaður aðal-
eigandi Eimreiðarinnar ásamt Félagi íslenzkra rithöfunda og tók þá
jafnframt við ritstjórn hennar.
- O-
Þannig er í stuttu rnáli útgáfusaga Eimreiðarinnar. Um efni henn-
ar eða stöðu meðal íslenzkra t ímarita skal ekki f jölyrt hér, en fullyrða
má, að hún liafi löngum verið nteðal merkustu tímarita landsins, og
hún á að baki lengstan feril íslenzkra tímarita, sem komið hafa út
í úbreyttu formi svo langan tíma og aldrei fellt úr árgang í 70 ár.
Þó að Eimreiðin eigi sér tiltölulega stóran lesendahóp, rniðað
við íslenzkar aðstæður, er því ekki að leyna að lnin hefur oft barizt
í bökkum fjárhagslega, ekki sízt á undanförnum verðbólgutímum,
þegar útgáfukostnaðurinn hefur sífellt farið hækkandi. Áskriftar-
verði ritsins hefur þó jafnan verið stillt svo í hóf, sem framast hefur