Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1966, Page 13

Eimreiðin - 01.05.1966, Page 13
MENNING sveitanna 101 Urn hljómfegurðar hennar en margur langskólagenginn maður okk- ar tíma hefur af að státa. Og vissulega þjálfaði þessi þjóðskóli rök- Vlsi. getspeki og hugkvæmni hjá hinum svokallaða sauðsvarta al- tttóga. Hinn sá brunnur örvunar og endurnæringar, sem þessi ■nenning átti sér, var sú munnlega frásagnarlist, sem við sjáum af 'ornum sögum, að iðkuð var liér á landi þegar á söguöld, ekki að- eins á heimilum, heldur og á mannfundum og þá ekki sízt á sjálfu Alþingi. Fornsögurnar voru lesnar í heyranda hljóði á hverju því heimili, sem til þeirra náði, en annars staðar sagðar af þeim, sem höfðu lesið þær eða heyrt þær lesnar eða sagðar. Og svo sem heim- ilisfólkið fræddi og fræddist um mynd- og málgátur kenninga og heita og um lögmál rímsins og háttanna, rökræddi það einnig or- saka- og afleiðingasamhengi sagnanna og gerð og framkomu sögu persónanna, Iivort sem þær voru innlendar eða erlendar, mat eðli þeirra og breytni, harmaði örlög þeirra eða gladdist yfir þeim. híenn dæmdu hart fals og róg og bleyðimennsku og hentu gaman að heimsku, en dáðu einurð, drengskap, hugrekki og vitsmuni, og mörg sógupersóna varð mönnum beinlínis fyrirmynd, sem stækkaði þá °g styrkti, stóð svo að segja við hlið þeim, þegar að steðjuðu hættur, hörmungar og harmar. Og sannarlega eru það aumkunarverðir fá- t'áðar, sem leggja að jöfnu lestur íslenzkra fornsagna og þá furðu- legu og ærið seyrðu lífsfyllingu að njóta þeirra mitímasagna, kvik- tnynda eða sjónvarpsþátta, þar sem glæpurinn og villimennskan ' uðast gerð að heiltæku meginatriði í lífi einstaklinga og þjóða . . . hfið snauða og umkomulausa fólk íslenzkra nauðalda átti að sjálf- sógðu sína drauma og sínar þrár, og ímyndunaraflið hóf sig til ilugs úr öskustó og hlaðvarpa, stutt arfgengri frásagnarlist, en bund- tð ærið takmarkaðri þekkingu á umheiminum og lögmálum náttúr- unnar, og til urðu ævintýri og sögur, mótaðar af unaði, dul og hrikaleik íslenzkrar náttúru, íslenzkum aðstæðum og þeim oft ærið serlegu og þó sjaldan skoplegu hugmyndum, sem fólkið hafði gert ser eða fengið á einn eða annan hátt um framandi lönd og þjóðir °g þá duldu heima og þau máttarvöld, sem fæstir drógu í efa, að væru staðreynd. Hjá ýmsum, sem voru ekki aðeins læsir, heldur einnig skrifandi, gáæddi ástin á kveðskap og sögum ástríðukennda áráttu til að færa 1 letur kvæði og kvæðaflokka, visur og þulur, sem þeir höfðu lært eða vissu einhvern kunna, einnig sögur og sagnir, gátur, húsráð °g raunar hvers konar fróðleik og skemmtiefni, furður og hindur-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.