Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1966, Page 19

Eimreiðin - 01.05.1966, Page 19
MENNING SVEITANNA 107 liændaheimilin hafa útvarp, símasamband við sveitina og landið allt, — þau eiga langflest einhver vélknúin farartæki, sum fleiri en eitt, og auk alls þessa eru víða daglegar ferðir rnilli hvers býlis og viðskiptamiðstöðva héraðanna. En fámennið á heimilunum veld- l*r því, að tómstundir til menningarauka verða fáar og stuttar — og þá einkanlega til framlags á menningarlegum vettvangi, hvort held- ur er á eigin liönd eða í samstarfi við aðra, en það er sá hluti menn- uigarlegrar viðleitni, sem er hvort tveggja í senn, vænlegastur til persónulegs þroska og mikilvægastur samfélaginu. Barlómur og vanmat. Eg efast ekki um, að ýmsir hafi leitt hugann að þessunr málum ~~ og þá ekki sízt bændurnir sjálfir. Hins vegar er svo það, að ég hef furðulítið séð um þau skrifað, og ég minnist ekki í fljótu bragði neins bónda, sem hafi gert hinn menningarlega vanda, sem fá- niennið í sveitunum veldur, opinberlega að umtalsefni og bent á nauðsyn þess, að fundin yrðu árangursrík ráð til úrbóta. Aftur á nróti er það algengt, að bændur taki skörulega til máls á opinberunt vettvangi um búskaparhætti, verð á nauðsynjunr sínum og afurð- nnr, lánsmöguleika og lánskjör og um mat annarra stétta á störfum °g' framtaki bændastéttarinnar og á hlutdeild hennar í afkonru þjóðarinnar. En þó að efnahagsmál bændastéttarinnar séu henni og þjóðinni allri mikilvæg og stundum allt annað en auðleyst, eru þau að nrtnni hyggju ekki eins torvelt viðfangsefni og ekki annað eins þjóðernislegt vandamál og menningarleg aðstaða og hlutdeild sveitafólksins. Á efnahagsmálum bænda mun ávallt verða ráðin lJót, þegar í harðbakann slær, svo mjög sem þau koma við þjóðina alla, og stjórnmálaflokkarnir eru það viðkvæmir fyrir hylli kjós- enda, að þeir láta sig muna um minna en þúsundir atkvæða bænda °g skylduliðs þeirra. En þörfin í menningarmálum sveitanna er ekki ems aðgangsfrek og fallin lán og afsagðir víxlar, — alþjóð hún eng- an veginn ljós og máski ekki lrreinn meirihluti þingmanna, sem fús er að verja tugmilljónum til úrbóta, enda ekki vísara en víst, að þar gildi til fulls mælikvarði bóndans, sem hafði komið syni sínum bl náms og undraðist eftir heimkomu hans, hve lítið hann hefði |tert, svo miklu sem til námsins hefur verið kostað í „mör og pen- ingum.“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.