Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1966, Side 20

Eimreiðin - 01.05.1966, Side 20
108 EIMRElfílN Á síðasta áratugi hel ég ferðast mjög mikið um byggðir landsins, farið um þær næstum allar, komið á fjölda mörg heimili og hitt ein- göngu vel rnannað, skemmtilegt og gestrisið fólk. ()g á hverju ári og á hverju býli hef ég undrazt jiað meir og meir, hvert geysiafrek bændastéttin hefur unnið á seinasta aldarfjórðungi. Hugsum okk- ur, að hálffimmtugur maður, sem fæddur hefði verið og uppalinn í sveit á íslandi — til dæmis norður í Skagafirði, — en farið f8 ára gamall af landi brott, setzt að í amerískri borg og komizt þar vel í álnir og ekkert samband haft við ættland sitt, yrði allt í einu grip- inn heimþrá og flygi til íslands og lenti í Reykjavík, en væri mjög brátt um að komast í átthagana og tæki þar umsvifalaust leiguflug- vél norður. Svo mjög mundi honum virðast þar um skipt, að trú- lega mundi hann spyrja sjálfan sig: „Er ég orðinn eitthvað ruglað- ur — eða er mig að dreyma allt þetta ferðalag?" Þegar hann svo sæi vinnubrögðin á sveitaheimilunum, mundi hann ekki verða síður hissa, já, ef til vill yrði hann hálfvonsvikinn. „Og ég, sem fór til að forðast fátæktina og baslið, sé hér allt breytt og get varla látið mér detta í hug, livað ég ætti að gera fyrir gamla sveitunga rnína af því, sem fæst fyrir peninga. Ég hafði reyndar hlakkað til að grípa í orf og sjá, hvort ég gæti ennþá slegið í helgrýtis þýfinu, — og svo þarf að leita að orfinu og ljárinn er ryðguð spík, — og stór þýfið er horfið. Ég ætlaði líka að vita, hvort ég gæti ennþá bundið bagga, og svo eru varla til reipi — og klifberinn kominn í eitthvert safn í Glaumbæ. Ég kann bókstaflega ekkert til þeirra vinnubragða, sem nú eru tíðkuð í sveitinni minni, frekar en ég hefði verið alinn upp á hafísjaka. . . . Nú, líka hafði ég ldakkað til að sofa undir súð og sjá stráin við gluggann bærast í morgungolunni — og svo . . . Eða ferðalögin hérna, — í sjálfum Skagafirði! Jafnvel ferfætlingarnir eru varla fluttir hér milli bæja öðru vísi en í bíl . . . Og mjaltakon- an gengur fyrir rafmagni — og fínn og lærður maður með sprautu í höndunum gegnir hlutverki tarfsins í héraðinu! Og svo, — svo láta menn að minnsta kosti svo, að maður skyldi næstum haida, að þeir hefðu ekki til hnífs og skeiðar, — já, maður gæti næstum hald- ið, að þeir væru aldir upp í auð og óhófi hjá kalífum Þúsund og einnar nœtur og þætti skömm til alls koma, sem jreir hafa hlotið sem umbun erfiðis síns, framtaks og dugnaðar!" Ójá, — mér hefur farið dálítið svipað og þessurn ímyndaða dánu- manni. Ég hef orðið þess mjög greinilega vís, að mörgum myndar- bóndanum finnst frekar lítið til koma efna sinna og aðstæðna.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.