Eimreiðin - 01.04.1973, Blaðsíða 33
ÉIM&EIÐIN
Ræða Schultz markaði tímamót. Að vísu voru þessar hug-
myndir ekki nýjar af nálinni, og fróðum mönnum hefur jafn-
vel tekizt að finna nokkrar línur hjá Adam Smith í Auðlegð
þjóðanna, þar sem hann gerir samanburð á vélum og verka-
mönnum og líkir tilkostnaði við að auka starfshæfni vinnulýðs
við fjárfestingu í betri vélbúnaði. En hugmyndin náði aldrei
umtalsverðu fylgi. í kenningum og rannsóknum hagfræðinga
var lítið sem ekkert fjallað um gæði vinnuaflsins, magnið eitt
var látið skipta máli. Og þannig var ástandið um miðjan fjórða
tug 20. aldar, er Maynard Keynes gerði stjórnarbyltingu í hag-
fræðinni, og setti fram kenningar sínar um hagsveiflur og or-
sakir langvarandi atvinnuleysis. Kenningar Keynes koma máli
mínu þess vegna við, að með hjálp góðra manna og í fyllingu
tímans fæddu þær af sér allfurðuleg afkvæmi, hin svokölluðu
hagvaxtarlíkön: það er að segja stærðfræðileg módel, er lýstu
eðli og orsökum langtima hagvaxtar. Höfuðorsök hagvaxtarins
var þarna alltaf talin hin sama, myndun fastafjármuna. Þessar
ltenningar vöktu í upphafi mikla alhygli, en snemma að lokinni
heimsstyrjöldinni síðari gerðist það, að hver brotsjórinn á fætur
öðrum reið yfir fílabeinsturna fræðimannanna, það kom í ljós,
að nýjar vélar og verksmiðjur orsökuðu efnahagsundur aðeins í
löndum þar sem fyrir liendi var hæft starfslið, er kunni að fara
með framleiðslutækin. I öðru lagi gerði tilkoma tölvunnar það
kleift, sem áður var ógerningur, að sannreyna gildi stærðfræði-
legra líkana af hagvexti á raunverulegum tölum úr þjóðarbú-
skapnum. Árangurinn var bághorinn. Ekki var unnt að rekja
nema smáhluta þess hagvaxtar, er reynt var að skýra, til fjár-
munamyndunar, og væri vinnuaflsaukningin tekin með í reikn-
inginn batnaði ástandið lítið. Aðeins var hægt að rekja tæpan
helming árlegrar framleiðsluaukningar þjóðarbúanna á Vest-
urlöndum til aukinnar notkunar framleiðslutækja og vaxandi
vinnuafls. Fjölmargra leiða var leitað út úr ógöngunum, og á
síðari liluta sjötta áratugsins voru nokkrir liagfræðingar farnir
að nota við útreikninga sína vísitölur, er mæla áttu gæði vinnu-
aflsins. Ræða Schultz kom því á tímum, er það sem hér verður
kallað mannauðsfræði, var í nokkrum uppgangi. En liann
hleypti skriðunni af stað, og segja má með sanni, að rannsóknir
Schultz og annars bandarísks hagfræðings, Garys Becker, liafi
markað alger tímamót. Prófessor Mark Blaug við Lundúnahá-
skóla, sem sennilega er fremstur evrópskra hagfræðinga á þessu
sviði, hefur gefið út skrár um bækur og greinar, er komið liafa
út um mannauðsfræði. í skrá hans frá 1964 er getið 420 bóka og
ritgerða, en þar af höfðu um 70% birzt á árunum 1960 til 1964.
121