Eimreiðin - 01.04.1973, Síða 63
EIMREIÐIN
l>etla þjóðfélag hafi verið fullkomnara en það, sem við búum
við nú, aðalatriðið er, að það var öðruvísi. Á þessum tíma var
það raunhæfur möguleiki að þeir, sem þess óskuðu, gætu hafið
arðvænlegan atvinnurekstur.
Nú horfir málið allt öðruvísi við. Smákaupmenn eiga í vök
að verjast fyrir S.Í.S., Hagkaup og öðrum stórmörkuðum. Hjá
iðnaðinum er ástandið þannig, að iðnaðarfyrirtæki verða að
safnast saman í stærri rekstrareindir til þess að standast tækni-
þróaða erlenda samkeppni. Jafnvel smábátaútgerðin er í hættu
vegna tilkomu hins nýja skuttogaraflota.
Hvað hefur orðið uin einstaklinginn i þessari þróun og liverl
verður hlutskipti lians i framtíðinni?
í þessari þróun, sem ég var að lýsa, hafa fyrirtækin stækkað
er> það leiðir til þess að valdið safnast saman á fáar hendur og
hlutskipti flestra verður að ldýða skipunum annarra. Einstakl-
■ ngurinn hefur ekki yfirráð yfir miklum fjármunum, og fram-
kvæmdavilji Iians er lamaður vegna sívaxandi starfsemi ríkis-
ius. Þannig hverfur einstaklingurinn í fjöldann og verður eins
konar tannhjól í stórri vél. Þörfum hans fyrir sjálfstæði og
irumkvæði hefur ekki verið fullnægt nægilega vel.
Þessari þróun, sem hér hefur verið lýst, verður að mæta. Það
verður ekki gert á augabragði, heldur þarf að taka þessi mál
151