Eimreiðin - 01.04.1974, Blaðsíða 16
EIMREIÐIN
er til kosninga; þar sem kosningar fara fram á fjögurra ára
fresti, gefst oft lítill tími til alvarlegra og markvissra, en óhjá-
kvæmilega óvinsælla, aðgerða gegn verðbólgu.
— Hverjir eru hinir helztu fjármálalegu þættir verðbólgu
á íslandi?
— Margar liliðar fjármálakerfis og fjármálastefnu á íslandi
koma hér við sögu. Ein afleiðing langvarandi verðbólgu er sú,
að við fslendingar álítum ýmsar fjármálaaðgerðir og stefnur
sjálfsagðar, þótt víst mætti telja, að þær myndu mæta víðtækri
mótslöðu, ef við hefðum búið við stöðugt verðlag. Stundum má
vera, að hér sé um að ræða tilraunir til að aðlaga hagkerfið
ákveðnum afleiðingum verðbólgu, i stað þess að ráðasl gegn
vandanum sjálfum. En, eins og minnst var á í sambandi við
vísitölubindingu kaups, þá verður slik aðlögun gjarnan til þess
að tryggja áframhaldandi verðbólgu. Áður en vikið verður að
hinum ýmsu fjármálalegu þáttum, skal þess getið, að það
fjármálakex-fi og þær fjármálastefnur, sem við búum við,
liafa flestar nxótast á löngum tíixia, til að þjóna þörfum atvinnu-
lífsins á verðbólgutínxunx. Það er því mikilvægt, þegar hugað
er að umbótunx á fjármálasviðinu, að unx kei’fisbundna heild-
ai’endurskoðun sé að ræða, vegna hinna nánu tengsla og sam-
lxengis liinna ýnxsu þátta fjármálakerfisins.
Á íslandi hefur verðbólgan mótast af, eða liaft mikilvæg áhrif
á, fjái’mögnun íbúðabygginga einstaklinga, lífeyrissjóðakerfið,
vaxtastefnu, og bankakei’fið og fjárfestingalánasjóði almennt.
Fleslar íslenzkar fjölskyldur búa í eigin húsnæði, og eitt
meginmarkmið ungs fólks er að eignast eigið húsnæði. Húsnæði
er alnxennt mjög vandað og kostnaður við byggingu er þar af
leiðandi nxjög hár, miðað við ráðstöfunartekjur flests ungs fólks.
Yfirleitt verður ungt fólk því að reiða sig mjög á lán úr líf-
eyrissjóðum, og lán Húsnæðismálastofnunar x-íkisiixs og við-
skiptabanka, við fjármögnun íbúðabygginga. Yfirleilt eru einnig
vaxtagi-eiðslur og afborganir mjög miklar fyrstu árin, og oft
þurfa hjón að leggja hart að sér, áður en þessar greiðslur
verða viðráðanlegri. Á síðustu 30 árum eru ótaldar þær fjöl-
skyldur, sem liefur tekizt að ráða við sína greiðslubvrði að
rniklu leyli, vegna lágra lánavaxta, og örrar verðbólgu og
meðfylgjandi hækkunar fjölskyldutekna. Því er það: að verulegur
hluti þjóðarinnar hefur jafnan beinan hag af og er fylgjandi
verðbólgu, sérstaklega aldui’sflokkarnir 20 — 30 ára. Stuðningur
þessi við verðbólgustefnu, sem óhjákvæmilega hefur áhrif á
aðgerðir vei’kalýðshreyfingarinnar og á afstöðu ríkisvaldsins til
efnahagsmála, mun væntanlega leiða til áframhaldandi and-
108