Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1974, Side 32

Eimreiðin - 01.04.1974, Side 32
ÉIMREIÐIN Þjóðhagsreikningar ben J. ( eimlregið til, að um óeðlilega mikla fjárfestingu liafi verið að iæða i landbúnaði, miðað við arð- semi hans i samanburði við fiðrar atvinnugreinar. Á árunum 1969 — 1971 var fjárfestir.g í landbúnaði, til dæmis 86% fjár- festingar í sjávarútvegi, þai sem fiamlag landbúnaðar til þjóð- artekna var aftur á móti aðein- 54% framlags sjávarútvegsins. Ef tekið væri tillit til verðl.óiguskatlsins á sjávarútveg, þá vaui seinni blutfallstalan vænian-ega nær 45%. Með öðrum orðum, fjárfesting i sjávarútvegi befur verið nær tvöfalt arðbærari en fjárfesting í landbúnaði. Einn þáttur heildarumbóla á hagkerfinu ætti að vera lag- færing stefnunnar í innflutnings- og verðlagningarmálum land- búnaðarins, og hagkvæmuri leiðir ætti að fara til að tryggja viðunandi kjör bænda. Nauðsynlegar úrbætur í landbúnaði geta flokkast í fimm meginþætli: (i) Afnám innflutningsbanns á landbúnaðarvörum, jafnframt innleiðslu hæfilegra verndartolla; (ii) Bændur og samtök þeirra æltu að hafa frjálsar bendur um verðlagningu landbúnaðai afurða; (iii) Endurmat á núverandi stefnu í fjárfestingarmábun iandbúnaðarins; (iv) Ivilnanir við skattlagningu, í stað óbeinnar niðurgreiðslu á fjárfestingu í landbúnaði með óeðlilega bagkvæinum lánaskilmálum; og (v) Framhald niðurgreiðslna á verði landbúnaðarafurða, ef þörf er talin á, en þess sé gætt, ao nicui’greiðsluhlutfallið sé hið sama fyrir allar helztu vörutegundir. Setja mætti á tímabundin við- bótaraðflutningsgjöld á landbúnaðarafurðir, t.d. um þriggja ára skeið, til þess að auðveída aðlögun landbúnaðarins að þess- ari kerfisbreytingu. 5. Afnám verðlagsákvæða. Verðlagsákvæði hafa lil þessa notið almenns stuðnings, sem leið til að hemja verðbólgu á Islandi sem og í ýmsum öðrum löndum, þrátt fyrir langa og oslilna hrakfallaslóð slíkra ákvæða. Ef liugað er að, að verð vöm og þjónustu eru jafnframt laun þess vinnuafls og fjármagns, sem framleitt hafa það, sem selt er, þá má e.t.v. finna helztu ástæðuna fyrir vinsældum verð- lagsákvæða: Menn eru fúsii að takmarka með valdboði tekjur annarra, þó að öðru máli gegni gjarnan með þeirra eigin tekjur. Því er það, að hverri þeirri ríkisstjórn, sem mistekizt hefur að vinna bug á verðbólgu .neð iilhlýðilegum ráðum, er auðveldað að skjótast undan ábyrgð; ef ollt annað bregst, þá má lýsa yfir öflugum stuðningi við verðlagsákvæði, til að sanna a.m.k. góðan ásetning viðkomandi rikisstjórnar. Þess er hins vegar áður getið, að verðlagsákvæði geta ;kld ráðið niðurlögum verðbólgu, vegna jiess, að þeim er ekli beint að orsökum hennar. Hins vegar 124

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.