Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1974, Side 50

Eimreiðin - 01.04.1974, Side 50
EIMREIÐlN íngum fyrri tíma aldrei dottiö í lmg, þeir voru of góðir í dönsku til þess. í vorkunarmáli einsog þessu skal ég ekki gera mér leik að þvi að úthrópa sökudólga, en svo að skiljist livaða fyrir- hrigði hér er verið að víta, skal ég tilgreina tvö ný dæmi úr fjölmiðli sama daginn: Um iþróttamann, „það var sko (sgu) ekkert að hendinni á honum ])á“; og um einhvern markað, „það er sko (sgu) eingin smáræðisútsala“. „Sko“ er einhverskonar íslenskt barnamál, virðist vera boðháttur af sögninni að skoða, og þýðir alt annað en danska orðið sgu sem blaðamenn okkar vilja láta það samsvara. Orðið sgu kalla danir sjálfir orðskripi i máli sínu, fyrir nú utan sem það er eftir uppruna sínum og eðli ruddalegt blótsyrði af þeirri tegund sem varla er til í is- lcnsku, enda á dönsku talið óprenthæft orð. Landar sem hafa lært slikt orð hljóta að hafa samneytt lángdruknum dönum eða öðrum siðferðilega vaunkuðum mönnum í Danaveldi, aðrir taka sér orðið varla í munn þar i landi. Notkun þessa orðs í islensku er enn ein sönnun þess að nútíma islendíngar eru illa að sér i dönsku þó þeir sletti lienni. Sgu mundi einginn íslend- íngur sem kann dönsku sletta i ræðu né riti á voru máli. MINNISGREIN UM STEFNUTILVÍSANIR Það ber votl um ókunnugleika manns á þeim stað þar sem hann er staddur, ef hann kann ekki að visa eftir gildri mál- venju til annarra staða nær og fjær. Jafnvel tilvisanir um leiðir innan sveitar liafa frá upphafi verið hundnar föstum orðatil- tækjum sérkennilegum fjuir hvern hæ, oftast i samræmi við athugun á áttum og legu lands, en stundum af menníngarsögu- legum rökum, einsog þegai- sagt er „heim að Hólum“ úr öllum áttum i Skagafirði; ellegar þegar Reykjavík er táknuð með at- viksorðinu „suður“ hvaðanæva á landinu (nema úr Keflavik, þar er sagt „inneftir“ eða því um líkt, ef ég man rétt). Einsog aðrir staðir hefur Reykjavík fastmótuð orðatiltæki til að marka stefnu úr bænum og að honum, eftir því hvert farið er eða hvaðan komið. Það á við um sérhvern stað að helst þarf maður að vera þar upp alinn til að vita rétt í þessu efni. Að- fluttir menn verða að læra stefnutákn og viðiniðun við áttir á undan flestu öðru i ókunnri sveit, nema þeir vilji eiga á hættu að verða að athlægi nágranna. Dæmi: reykvíkíngar fara á eða uppá Akranes og í eða uppí Borgarnes, aldrei í Borgarnes eða í Akranes; „til“ Borgarness eða „til“ Akraness lætur útlensku- lega i eyrum reykvíkínga; menn koma aftur af Akranesi og úr Borgarnesi, aldrei úr Akranesi eða af Borgarnesi, því síður „frá“ Borgarnesi eða „frá“ Akranesi. 142

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.