Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1974, Side 55

Eimreiðin - 01.04.1974, Side 55
EIMREIÐIN um og jafnvel skólum landsins, liefur þessi þróun engin vanda- mál í för með sér. Ilún leysir einstaklinginn undan öllum kvöð- um, og því ætti að hraða henni sem mest. Fjölskylduna her að leysa upp eða gera jafnréttháa annars konar sambúðarformi. Þjóðfélagið sjálft á að sjá um börnin og móta þau að kröfum sínum. Sú röksemdafærsla, sem notuð er i þessu máli, einkennist af hinni einstöku hugmynd múghyggjumanna, að skoðun þeirra sé alltaf alls kostar rétt, ef þeir geta sannað, að andstæð skoð- un (eins og þeir túlka hana) sé röng. Það er þreytandi að rök- ræða við menn, sem fara með gömul sannindi eins og um spán- nýjar liugmyndir sé að ræða. En þó skulum við gera okkur grein fyrir því, að slrangt uppeldi getur verið til ills, að örva ber ungl fólk til að þroska sjálft sig, að samband, sem ekki felur i sér skuldbindingar við aðra, getur verið þeim til góðs. Ekki eru þessar staðreyndir þó til fyrirstöðu þeirri skoðun minni, að múghyggja, eins og hún gengur lengst, er röng. Það er ómannúðlegt að losa ungt íolk undan ábyrgð. Sá er aumkunarverður, sem enga útrás fær fyrir trúarþörf sína og ekki eru gerðar fagurfræðilegar og siðferðislegar kröfur til. Mikil hætta er á því, að hann steypist í staðlað mót, sniðið að efnislegum og tilfinningalegum kröfum þjóðfélagsins. Sá, scm ekki er sérstaklega vel gefinn og fær ekki nauðsynlega mótun þeirra, sem þvkir vænt um hann, týnir hráðlega hinu mann- lega. Einstaklingsþroski lians rýrnar, og tilfinningasambandið hverfur eða verður yfirborðslegt. Unglingurinn finnur ekki sjálfan sig, gerir sér ekki grein fvrir andlegum þörfum sínum. Hinni eðlilegu nauðsyn á mannlegum samskiptum verður ekki fullnægt. Unnt er að samræma hina andlegu fátækt félagslega og stjórn- málalega aðhæfðu lífi. Því miður eru mörg dæmi þessi i Sví- þjóð, að þetta hefur farið út í öfgar. Þar brýzt skortur einstak- lingsþroska fram í hættulegum flótta frá raunveruleikanum og i stjórnlausri leit að mannlegu sambandi, í algerri örvæntingu. Tölur, sem sýna drykkjuskap unglinga, eiturlyfjaneyzlu, sið- leysi, unglingaglæpi og sjálfsmorð i Sviþjóð, myndu ekki láta spámenn múghyggj unnar í friði, ef kreddur þeirra hefði ekki gert þá blinda og heyrnarlausa á staðreyndir. I þjóðfélagi okkar er tilhneigingin sú, að línur milli góðs og ills verða óskýrari, æ meiri áherzla er lögð á aðlögun manna að samfélaginu, en manngildi og mannleg samskipti eru að hverfa. Heilbrigðisþjónustan hefur orðið æ ómannlegri og vél- væddari eftir hreytingar síðustu ára. Samhand sjúklinga og 147

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.