Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1974, Síða 60

Eimreiðin - 01.04.1974, Síða 60
EIMREIÐIN ER EITTHVAÐ NÝTT AÐ GERAST? Líf nútímamanns er flókið, erfitt, næstum óreiðukennt og reynir á skynsemi og ábyrgðartilfinningu. Það væri ómaklegt og svik við menningararf okkar, ef Svíar ganga í fararbroddi < fyrir múghyggju, sem beinist að því að eyðileggja hinn frjálsa heim. Við getum ekki þolað, að börn okkar og barnabörn verði svipt rétti sínum sem einstaklingar, fæðist inn í mauraþúfaþjóð- félag, sem stýrt verði af klíku, er segir sig vinna að fyrirsögn fjöldans, en er raunverulega jafnbundin hinu ómannlega kerfi og liinir undirokuðu. Hættulegasta túlkun á tilhneigingum múg- hyggju er sú einlita skoðanamyndun, sem verður afleiðing ríkis- flokkakerfis. Þvi er nauðsynlegt að hafa svör á reiðum liönd- um i anda mannhyggju á öllum sviðum, er varða skoðana- myndun og kennslu. Sjálfur hef ég lengi haldið þessari skoðun fram, jafnt í einkasamtölum sem á opinberum vettvangi. Nú er tími kominn til framkvæmda, enda virðist ísinn vera að brotna, eins og von sé nýrra tiðinda. Mig langar að telja upp nokkur atriði, sem nauðsynleg væru: 1. Samtök þeirra, sem fjölmiðlað er til. Forystumenn slíkra samtaka þurfa að hafa hugrekki til þess að vera hugmynda- fræðilegir að því marki, að þeir gerðu kröfu til skynsemi og sanngirni og skirrðust ekki við að berjast gegn rangfærðri rök- fræði, ekki einu sinni þeirri sem kennd er við Marx. 2. Einhvers konar hreyfing í þá átt að koma á laggirnar al- hliða bókaútgáfu. Eitt bið mikilvægasta í þeim efnum eru vand- aðar bókmenntir fyrir börn á öllum aldri. Börn eiga rétl á því að kynast söguhetjum úr nútið og fortíð, sem gefið geta hug- myndaflugi þeirra lausan tauminn og Iiaft á þau góð áhrif, en valda ekki hatri og fordómum. Um pappírskiljurnar er það að segja, að sannarlega þarf mótvægi við hinni rauðleitu hol- skeflu, sem ríður yfir búðarborðið. Ekki væri vanþörf á þvi að þýða nokkrar helztu þeirra bóka, sem gagnrýna kenningar Marxs og komið hafa út á seinni árum. Meðal þessara bóka er Introduction lo Marxist Theory (19(50) eftir Henry R. Mayo og Marxism — One Hundred Years in the Life of a Doctrine (19(57) eftir Bertrand D. Wolfe. 3. Útgáfa rita til lesturs i skólum og annarra kennslugagna. Þörf er stuttra, málefnalegra túlkana á sérstaklega umdeildum málum til viðbótar þeim bókum, sem þegar eru til, sérstaklega i sögu og félagsfræði. Nauðsynlegt væri að rannsaka þau mark- mið, sem skólavfirvöld setja námi og gera tillögur um þau. 4. Baráttusamtök foreldra, sem berðust fyrir því, að agi, siðun og alvarleg þekkingarleit kæmust aftur á í skólakerfi okkar. 152

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.