Uppeldi og menntun - 01.01.1995, Side 15

Uppeldi og menntun - 01.01.1995, Side 15
KRISTÍN INDRIÐADÓTTIR og samkeppni. Mannúðarsinnar vildu uppfylla fyrirheit bandarískrar hugmynda- fræði um stjórn fólksins fyrir það sjálft; nú átti að nota skólana til að bæta líf ein- staklinganna. Þetta þýddi að skólinn fékk víðtækara hlutverk en hann hafði haft og skyldi þar nú m.a. fjallað um heilsuvernd, störf og gæði fjölskyldu- og félagslífs. Það átti að beita kennsluaðferðum sem byggðust á rannsóknum í sálar- og félags- vísindum og sníða kennsluna að þörfum þeirra ólíku kynþátta og stétta sem bjuggu í bandarísku þjóðfélagi. Allir áttu að ganga í skóla. Þetta skapaði mikinn vanda og gerði óhjákvæmilegt að breyta bæði inntaki menntunar og kennsluaðferðum (Cremin 1962:viii-ix, sjá einnig Darling 1994:1-5). Helstu rætur framstefnunnar lágu annars vegar í sálarfræðinni og hins vegar í verkhyggjunni. Svipaðar hug- myndir bárust einnig vestur um haf frá Evrópu. Um aldamótin var menntunarsálarfræðin að verða að sérstakri grein, ekki síst fyrir atbeina Edwards Lees Thorndikes.9 Markmið hans var að þróa alhliða upp- eldisvísindi sem byggja mætti allt skólastarf á og voru vísindalegar mælingar ríkur þáttur í því. Thomdike byrjaði tilraunir sínar á dýrum fyrir aldamót og út frá niðurstöðum þeirra setti hann fram sérstök námslögmál. Lögmálin miðuðust við að tengsl áreitis og viðbragða, sem hafa þægindi og fullnægju þarfa í för með sér, festast og eru yfirleitt endurtekin en árangurslausar svaranir falla brott. Námslög- málið um að vera tilbúinn (law of readiness), æfingarlögmálið (law of exercise) og árangurslögmálið (law of effect) voru kjarninn í kenningu Thomdikes. Hann var frumkvöðull að því að nýta þekkingu úr sálarfræði við kennslu í lestri, reikningi, skrift og móðurmáli. Hann ritaði mikið um reikningskennslu og vildi byggja upp jákvætt viðhorf bamanna til hennar með því t.d. að fjalla um viðfangsefni hins dag- lega lífs og raða efninu eftir þyngd (Research for tomorrow's schools 1969:96-110). Hann vildi mæla greind barna með prófum við upphaf skólagöngu og ritaði mikið um mælingar og próf, bæði sálfræðileg próf og skólapróf. Hann og lærisveinar hans þróuðu fjölda mælikvarða til að kanna kunnáttu barna. Þá fjallaði hann einnig um mikilvægi áhuga í námi almennt, námsefni, kennslufyrirkomulag og hvemig kenn- arar gætu komið til móts við einstaklingsmun nemenda (Cremin 1962:110-115). Sálarfræðikenningar Thorndikes voru áhrifamiklar í bandarískri kennaramenntun um þetta leyti og raunar langt fram eftir öldinni (Thayer 1970:214) en í kringum 1920 var umræða um gildi prófa í algleymingi. Verkhyggjusinninn William James, kennari Thorndikes, ritaði margar bækur um sálarfræði fyrir kennara upp úr aldamótum og fyrir áhrif frá honum var farið að leggja áherslu á það í bandarískri kennaramenntun að taka skyldi mið af þroska barna. Hann boðaði heildarsýn á barnið, líf þess og starf. James taldi sálarfræðina vísindagrein en kennslu list og fjallaði mikið um hvernig kennarar gætu tengt það sem nema skyldi reynslu bama. Áhuga barnanna taldi hann aflvaka allra framfara í námi (Research for Tomorrow's Schools 1969:45-46). 9 Grein eftir Thomdike, „Gáfnapróf", birtist í Mmntamálum 1926, líklega í þýðingu ritstjórans, Ásgeirs Ásgeirs- sonar, þáverandi fræðslumálastjóra. 13
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.