Uppeldi og menntun - 01.01.1995, Blaðsíða 131
SIGFRÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR
TÓNLIST, MYNDIR OG TÁKN
Höfundar og útgefendur Robert S. C. Faulkner og Hólmfríður Bjartmarsdóttir 1994. Dreif-
ing: Robert S. C. Faulkner Hafralækjarskóla Aðaldal Suður-Þingeyjarsýslu. 100 mynd-
spjöld með kennsluleiðbeiningum.
í ritdómnum segir m.a.: „Leikmaður sem tæki spjöldin ogfæri bókstaflega eftir leiðbein-
ingunum myndi sennilega ekki gera sérfulla greinfyrir því hversu mikilvægt og gott undir-
búningsstarf hann væri að vinna".
Mikil umræða hefur verið í uppeldisgeiranum á undanförnum misserum um gildi
þess að brúa bilið milli leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla og annarra þeirra stofn-
ana sem böm sækja þjónustu til og gegna mikilvægu hlutverki í uppvexti þeirra.
Umræðan hefur greinilega skilað sér og menn finna sig ekki lengur knúna til að láta
frá sér efni sem einskorðað er við eitt aldursstig eða eina stofnun. Er það vel.
Kennsla í tónmennt á undir högg að sækja í skólakerfinu. Kemur þar margt til.
Erfitt getur reynst að fá sérhæft fólk í þessa kennslu, enda aðstaðan til kennslunnar
víða mjög bágborin. Ekki er alls staðar um sérútbúnar kennslustofur að ræða,
kennslugögn og tæki af mjög skornum skammti, námsefnisútgáfa í greininni
skammarlega lítil á undanfömum áratugum og almennt hamlar fjársvelti framför-
um. Það síðastnefnda gildir reyndar um alla kennslu í grunnskóla.
Nýlega kom út, á vegum framtakssamra aðila á Norðurlandi, nýtt efni ætlað
þeim sem iðka tónlist með börnum á aldrinum 4—8 ára. í kennsluleiðbeiningum er
gert ráð fyrir að um geti verið að ræða börn í leikskóla, fyrstu þrjá árgangana í
grunnskóla, nemendur í forskóla tónlistarskóla og jafnvel byrjendur í hljóðfæra-
námi. Telja verður útgáfu sem þessa til tíðinda.
Efnið samanstendur af 100 spjöldum með fjölbreyttum klippimyndum og alls
konar „grafískum" og hefðbundnum nótnatáknum. Hugmyndin að gefa út slíkt
myndasafn er mjög góð. Oftar en ekki eru kennarar meira en viljugir til að vinna á
fjölbreytilegan hátt, en það er þung byrði að þurfa að útbúa námsgögnin sjálfur
fyrir hvert skref sem stigið er og margur sligast. Með myndapakkanum fylgja
kennsluleiðbeiningar á fjórum blaðsíðum þar sem reifaður er tilgangur með
hverjum flokki mynda og varpað fram hugmyndum um vinnubrögð.
Spjöldin skiptast í níu flokka. Flokkarnir eru misviðamiklir, í sumum eru yfir 20
spjöld en í öðrum mun færri, allt niður í þrjú spjöld. Lögun spjaldanna er mismun-
andi, þau stærstu A4 og þau minnstu í póstkortastærð. Öll spjöldin eru númeruð.
Uppeldi og mermtun - Tímarit Kennaraháskóla fslands 4. árg. 1995
129