Uppeldi og menntun - 01.01.1995, Síða 132
TÓNLIST, MYNDIR OG TÁKN
í fyrsta flokki er 21 mynd, þar sem viðfangsefnin eru mjög mismunandi, sbr.
„Naut að baula", „Haust" og „Eldgos". Hverri mynd er fylgt úr hlaði með tillögu
að útfærslu og ábendingum um söng og hlustunarefni sem hugsanlegt er að nota.
Gamlársnótt - nr. 20
eins úr þessum þremur hugmyndum. Búa
flugelda, blysin og bálið.
Herma eftir flugeldum með rödd og
líkama. Krjúpa á gólfinu og hoppa
upp í loftið og springa. Æfa að renna
upp með rödd frá djúpum upp á háan
tón. Prófa hljóðfæri svo sem sleða-
flautu, tréspil og píanó. Slá á diskinn
á sama augnabliki og komið er upp á
hæsta tón. Velja annað hljóðfæri til
þess að herma eftir neistafluginu frá
sprengingunum. Búa til tónverk að-
til „hljóðlíkingarorð" fyrir alls konar
Söngefni: Máninn hátt á himni skín, Álfareiðin og Álfadans.
Hlustun: Royal Fireworks Music eftir Georg F. Handel.
í kennsluleiðbeiningum er lögð sérstök áhersla á að um tillögur sé að ræða og not-
endur hvattir til að nýta spjöldin á sem fjölbreytilegastan hátt.
Eins og sjá má á dæminu hér að ofan geta tillögurnar, þó í skeytaformi séu,
verið mjög áhugaverðar. Einn stærsti kosturinn við þær er hversu mjög er hvatt til
markvissra vinnubragða með það sem meginmarkmið að nálgast innviði og lögmál
tónlistar úr sem flestum áttum og örva og þróa viðbrögð við tónlist. Þama er glímt
við öll helstu grunnhugtök í tónlist, tekist á við fyrstu skref niðurritunar á tónlist,
grunnur lagður að umræðu um túlkun og tjáningu og alltaf haft að leiðarljósi að
nemandinn sé virkur þátttakandi. Leikmaður sem tæki spjöldin og færi bókstaflega
eftir leiðbeiningunum myndi sennilega ekki gera sér fulla grein fyrir því hversu
mikilvægt og gott undirbúningsstarf hann væri að vinna. Fyrir fagmann eru þessi
vinnubrögð ekki ný, en spjöldin gott stuðningsefni sem gefur hugmyndir og sparar
vinnu.
Ýmislegt gæti betur farið í þessum annars ágætu námsgögnum. Ekki er í öllum
tilfellum tryggt að leiðbeiningarnar nýtist hverjum sem er. Ósennilegt er að allir
skilji í texta með spjaldi nr. 4 (Hestur hlaupandi) þegar segir án frekari skýringa:
Kennarinn getur spilað „rocking blues bass" ÍG á píanó eða gítar.
Hugsanlegt er að slíkar tillögur fæli frá þá sem annars gætu jafnvel spilað það sem
um ræðir ef það væri sett fram á skýrari hátt.
Listi yfir möguleg hlustunardæmi með verkefnum er vel til fundinn, en ekki er
ólíklegt að upplýsingar um hvar minna þekkt hlustunardæmi er að finna væru mjög
130