Uppeldi og menntun - 01.01.2003, Qupperneq 152
MAT A SAMSKIPTAHÆFNI
FJOGURRA
ÁR A
BARNA
Börn sýna leikfélaga sínum vinsemd og virðingu
Þau sýna hvort öðru nokkuð oft vinsemd án þess að fram komi mikill áhugi á and-
svari félagans. Þetta birtist í dæmi 1 hér að framan þegar Birta sýnir Erni ákveðna við-
urkenningu og segir: „Kannski getur þú unnið", þótt hún standi fast á sínu og gæti
eigin hagsmuna þegar hún lýsir því yfir að hann vinni hana sko ekki.
Leikur leysir eða forðar ágreiningi
Leikur er börnunum svo tamur að nokkur pör áttu erfitt með að ljúka við að spila;
þau biðu eftir því að komast á lokareit þar sem tröllin gætu leikið sér saman í veisl-
unni en það var lokamarkmið spilsins. Þykjustuleikir tóku undantekningarlítið við
að loknu spili er bæði tröllin voru komin í veisluna. Mikil gleði upphófst hjá tröllun-
um, „minn og þinn" gerðu allt mögulegt og þykjustuleikurinn varð allsráðandi.
Jafnframt nota sum barnanna leikinn til þess að forða ágreiningi eða leysa hann.
Þannig virtust þau ná til leikfélaga síns og samskiptin urðu átakaminni. í dæmi 2
kemur þetta fram hjá þeim Birtu og Erni, en þegar þau spila saman leika þau sér oft
(1-Leikur), fara í hlutverkaleik (1-Þykjustul) eða fíflast (O-Galsi).
Dæmi 2
l-Sérumsig,
O-Galsi
1-Kastar,
1-Kastar
1-Spyr
1-Neitar
1-Viðurk,
1-Skipar
1-Fullorð,
1-Regla,
1-Kvartar
1-Sérumsig
1-Spyr,
1-Regla
1-Neitar,
O-Reglubrot,
1-Þykjustul
1-Mótmreglu Birta: „Já en heyrðu ...".
O-Kúga Birta: „Já en þú átt að vera þarna".
1-Þykjustul Birta segir í leiktón: „Bíddu eftir mér".
Birta tekur teninginn og kastar um leið og hún segir: „Núna ég".
Svo fíflast hún svolítið og bullar: „Deija bía besebía".
Birta kastar teningnum telur punktana á teningnum og segir: „Sex".
Telur og flytur tröllið áfram á reiti.
Birta stoppar þegar hún hefur flutt tröllið um þrjá reiti, horfir á Örn og spyr: „Fékk
ég fjóra ... (hik) eða sex?".
Örn hristir höfuðið.
Örn segir „Eg veit það ekki, teldu".
Birta telur aftur á teningnum. Heldur svo áfram að flytja tröllið sitt áfram á reiti.
Tröll hennar lendir á sama reit og tröll Arnar stendur á. Birta skotrar augunum til
rannsakandans og segir: „Oho, er ég komin aftur á þetta?".
Örn segir: „Á, ókey, ég á að gera" og tekur teninginn.
Birta segir: „Á ég að fara heim? Á hann að fara heim? Hver á að fara heim?".
Örn segir: „Enginn, við þurfum að komast í afmælið, við erum allt of sein".
Eftir þetta fíflast Örn svolítið og byrjar að flytja tröllið sitt áfram á reiti, með leiktil-
burðum, í átt að veislunni. Birta svarar á sömu nótum og segir aftur með leiktóni í
röddinni: „Bíddu eftir mér". í þessu dæmi sjáum við að Birta lendir á sama reit og
Örn. Samkvæmt reglum spilsins á Örn þá að flytja sitt tröll á byrjunarreit að nýju.
Hann flytur ekki tröllið og Birta virðist óörugg á því hvernig reglan er og ber málið
150