Uppeldi og menntun - 01.01.2003, Blaðsíða 87

Uppeldi og menntun - 01.01.2003, Blaðsíða 87
KRISTIN UNNSTEIN5D0TTIR an frummótsins. Samuels o.fl. (1997: 145-146) leggja áherslu á að tákn eigi upptök í frummóti en Jung (1967: 158) skilgreinir frummót sem „meðfæddan hæfileika til að geta af sér hliðstæðar hugsanir." Jung flokkar frummót þau sem birtast í ævintýrum eftir þemum og notar um þau táknræn heiti þar sem hann telur að notkun tákna hæfi best þegar maðurinn fer yfir á svið hins óþekkta og þess sem hann skilur ekki til fullnustu. Jung greinir á milli þemanna og lýsir þeim stundum á myndrænan hátt. Til dæmis notar hann orðið skuggi yfir dulvitaðan hluta egósins eða miðpunkts meðvit- undarinnar. Kvenlega þætti í karlmanni kallar Jung animu, og animus er það hugtak sem hann notar til þess að vísa til karllegra þátta í konum. í ævintýri Njarðar hafa hinir kvenlegu þættir hindrandi áhrif. Stjúpan sem hér má líta á sem animu læsir Jón, sem er tákngervingur egósins, niður í kistu sem hún hendir út í sjó. I hlutverki tröllskessunnar bindur animan Jón niður. Þriðja birtingar- mynd animunnar, systirin Lára, er ekki ógnvekjandi en þróttleysi hennar hefur tálm- andi áhrif. Jón verður að synda með hana á bakinu og þegar systirin deyr jarðar hann hana á ströndinni. Þegar animan deyr í annað sinn í ævintýrinu er það með vitund og vilja sögupersónunnar Jóns sem sker tröllskessuna á háls. Til þess að kalla fram nýja, sterka og jákvæða animu verður hin gamla, veikbyggða og neikvæða að deyja. f þessu ævintýri verðum við ekki vitni að fæðingu heilsteyptari animu og má segja að það sé samkvæmt hefðinni, en eins og von Franz (1989:26) hefur bent á, segja sígild ævintýri aldrei alla sögu af sálarlífinu og háttum þess. Fremur er um það að ræða að hvert ævintýri lýsi skrefi í viðureigninni við frummót eða þær kenndir og eðlishneigðir sem viðkomandi frummót tengjast. í einu ævintýri er athyglinni beint að skugganum, í öðru að animunni eða einhverju öðru frummóti án þess þó að birta mynd af öllu ferlinu sem þar að auki er síendurtekið í sérhverjum einstaklingi. Titill ævintýrisins, Jón og drengirnir fjórir, er greinilega engin tilviljun því í loka- viðureigninni við hina erfiðu animu er hjálp bræðranna fjögurra, sem standa fyrir frummótið skuggann, ómetanleg. Jón bregst við bón drengsins um mat eins og sannri hetju sæmir og í anda sígildra ævintýrapersóna. Hann útvegar samstundis það sem drengurinn biður um og fær að launum töfragrip sem hjálpar honum í nauðum. Með skeifuna, sem er þekkt fyrir eiginleika sína til að vernda og veita hamingju, upp á vasann, leggur Jón af stað inn í skóg í leit að næturstað. Hellirinn sem hann kýs til að hvílast í reynist vera íverustaður skessu nokkurrar sem bindur hann niður í svefni. Með hjálp skeifunnar, sem hér gæti táknað sameiningarkraft sjálfsins, tekst Jóni að ná sambandi við hina skapandi krafta skuggans í gervi bræðranna fjögurra sem færa honum styrk, visku, hraða og töframátt. Hraði einkennir þennan hluta sögunnar: Jón er leystur, tröllskessan er bundin, lamin niður og skorin á háls. Þegar Jón býðst til að launa bræðrunum fjórum greiðann óska þeir eftir að hann hjálpi þeim að komast burt frá eyju úti á miðju hafi, en hafið birtist gjarnan sem tákn fyrir dulvitundina. Þetta bendir til að skuggaþættirnir leiti í áttina að meðvituðum hluta sálarlífsins þar sem þeir kunna að verða samþykktir og innlimaðir. Jón og drengirnir fjórir búa til fleka úr trjábol, sigla yfir hafið og komast heim til Jóns. Sögu- hetjan hittir aftur föður sinn sem rekur stjúpuna vondu úr landi. Faðir og sonur lifa upp frá því hamingjusamir til æviloka. Fyrstu kynni einstaklingsins af orku frummóts sem stendur fyrir eiginleika hins 85
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164

x

Uppeldi og menntun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.