Uppeldi og menntun - 01.01.2003, Page 153

Uppeldi og menntun - 01.01.2003, Page 153
KRISTIN KARLSDOTTIR undir Örn sem svarar því til að ekki þurfi að fara eftir reglunni og vill að spilið haldi áfram. Hann notar þykjustuleik, segir að þau verði of sein í veisluna. Birta hreyfir mótmælum en gefur svo eftir og tekur þátt í þykjustuleiknum með Erni. Mismunandi hegðunarmynstur hjá drengjum og stúlkum í báðum skólum samanlagt var hegðun sex drengja og 10 stúlkna metin, tvisvar með níu mánaða millibili. Tölurnar eru því byggðar á fáum einstaklingum og ójöfnu hlut- falli kynjanna og því varasamt að draga ályktanir er tengjast kynjamismun. Ekki reyndist marktækur munur á tíðni stiga samskiptaskilnings drengja og stúlkna eftir skólunum tveimur, hvorki í janúar né september. Við nánari skoðun á hegðun ein- stakra barna sem tóku þátt í þessari rannsókn má þó greina ólíka tilhneigingu í hegð- unarmynstri kynjanna. Drengirnir í þessari athugun sýndu allir einhvern tíma að þeir voru tilbúnir að svindla svo fremi sem enginn gerði athugasemd við það. Slíkt hegðunarmynstur greindist ekki hjá stúlkunum. Hins vegar gerðu þær athugasemd við hegðun félaga síns en fylgdu því ekki eftir ef félaginn tók ekki athugasemdina til greina. í hegðun drengjanna birtist þetta þannig að drengirnir sex notuðu allir einhvern tíma þá aðferð að svindla, brjóta reglu eða vera yfirgangssamir, en draga svo í land aftur (1-Hörfa) ef félaginn mótmælti. Mynstur drengjanna birtist til dæmis í því að þeir höfðu svindlað (1-Svindl), brotið reglu (O-Reglubrot) eða verið yfirgangssamir gagnvart félaganum með eigin hag í huga en hættu við að framkvæma aðgerðina eða drógu hana til baka þegar félaginn gerði athugasemd af einhverju tagi. í dæmi 3 kemur þetta fram hjá þeim Mána og Sigga. Dæmi 3 l-Sérumsig 1-Svindl 1-Klaga 1-Hörfa 1-Kastar 1-Kastar Máni tckur teninginn úr hönd Sigga. Máni leggur teninginn á borðið og snýr honum þannig að sex kemur upp. Segir: „Aftur sex". Siggi horfir á fullorðinn og segir: „Heyrðu, hann setti. Máni tekur þá teninginn og kastar honum. Máni telur á teningi og segir: „Fimm". Máni telur og flytur tröll sitt áfram á reiti. í þessu dæmi klagar Siggi svindl leikfélaga síns í fullorðinn. Máni tekur athugasemd- ina til greina, án þess að til afskipta af hálfu fullorðins komi. Hvað stúlkurnar varðar voru það eingöngu fjórar stúlkur af 10 sem drógu tillögu eða aðgerð til baka (1-Hörfa), en þá var tilefnið annað. Það var þegar þær höfðu gert athugasemd við gerðir félaga síns, ýmist í hjálplegum eða gagnrýnum tilgangi, en gengu ekki eftir því að hann tæki mið af athugasemdinni. í dæmi 4 kemur þetta fram þegar Árný spilar við Maríu. María lendir með tröll sitt á sól. Samkvæmt reglum spilsins á sá sem lendir á sól að flytja sig um nokkra reiti aft- ur á bak í næsta kastala. 151
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.