Iðunn - 01.11.1884, Blaðsíða 36

Iðunn - 01.11.1884, Blaðsíða 36
Snarræði af stúlku. 258 una; og hjónin gömlu horfðu glöð og ánægð á, að unga fólkið skemmti sjer. |>annig liðu meira en þrjár vikur, og fór þá að síga á seinni hlutann af sumarleyfinu. Einn góðan veðurdag í ágústmánuði gengu þær stallsystur seint til rekkju í turnklefa sínum. Lára sofnaði undir eins, en Ebba lá lengi vak- andi og gat með engu móti sofnað. Henni var ein- hvern veginn svo undarlega órótt, og gat hún með engu móti skilið í því, hvernig á því stæði. Hún bylti sjer á ýmsar liliðar í rúminu. Loks hugsaði hún sjer að hún skyldi reyna að liggja graf- kyr og vita hvort hún gæti ekki komizt í værð með því móti. Hún lá góða stund með aptur augun, en rak þau upp allt í einu og einblíndi beint fram undan sjer. Hún sá mannshöfuð gægjast upp fyrir fótagafliun á rúminu, og horfa á sig milli sparlakanna hvasst og stöðugt. það gat engin missýning verið; hún sá andlitið skýrt og greinilega; maðurinn var fölleitur, svartskeggjaður, svarteygður og inneygður. jpað var tunglskin og því hálfbjart innan um herbergið. í sama bili rumskaði Lára dálítið í svefninum, og þá hvarf höfuðið. Ebba lá grafkyr ofurlitla stund. Hún var dauð- hrædd, sem von var til, en hafði þó alla rænu, og hugsaði sig um glöggt og vandlega. Gat þetta verið sjónhverfing?------Nei, nei, hún sem var glaðvakandi og heyrði þar að auki greinilega, að fötin strukust við gólfið og rúmbotninn, þegar maðurinn mjakaði sjer inn undir það hægt og gætiloga. Nei, hjer gat ekki verið um tvennt að tefla. —

x

Iðunn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðunn
https://timarit.is/publication/441

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.