Iðunn - 01.11.1884, Blaðsíða 40

Iðunn - 01.11.1884, Blaðsíða 40
262 Snarræði af stúlku. »Komið þjer út og látið þjer vekja vinnumennina; jeg get svarið, að það er satt sem jeg segi«. »Hver þremillinn er á ferðum ? þeim er full alvara heyrist mjer. Nú skal jeg koma. En guð hjálpi ykkur, ef þið eruð að gabba mig«. Að lítilli stundu liðinni kom hann út alklæddur með ljósbera í hendinni. »Nú, það er satt; einhver fjandinn er á seyði, því þið eruð náfölvar báðar tvær«. Ébba sagði honum nú upp allasögu,ogloks,hvern- ig hún hafði farið að loka kauða inni í turnklefan- um. »|>að var laglega gert; það líkar mjer«, sagði hús- ráðandi; »bíðið þið við hjerna stundarkorn, meðan jég er að safna liði«. Ebba settist niður; hin voðalega geðshræring, sem hún hafði orðið fyrir, bar hana nú ofurliða ; lnin skalf og titraði öll saman, og mátti Lára til að styðja hana. Hún reyndi eins og hún gat að harka þetta af sjer og tókst það von bráðar. þ>að var hálf-óskemmtilegt, þessi bið þarna. Loks kom húsráðandi aptur, með stúdentana alla þrjá og tvo vinnumenn. Leggur nú allt þetta lið af stað upp að turnklefanum. þegar þau komu að stiganum, nam Ebba staðar. »Nú verður að hafa mestu varúð við«, mælti hún og varð ósjálfrátt litið á son húsráðanda. »í Guðs bænum ljúkið þið ekki upp, fyr en við erum búin að skipa okkur öll í tvær raðir, slna til hvorrar hlið- ar, og sá sem lýkur upp, verður að standa á hurðar- baki. það má búast við, að hann hafi eitthvað í höndunum, og mun þá ugglaust skjóta út um dyrn- ar, í því skyni að ryðja sjer þannig braut«.

x

Iðunn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðunn
https://timarit.is/publication/441

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.