Ægir - 01.01.1941, Qupperneq 16
10
Æ G I R
anum. Yfir sumarið stunduðu flestir bát-
arnir dragnótaveiði og var afli dágóður.
Á haustin er yfirleitt stunduð línuveiði
á þessum slóðum og svo var einnig nú.
í nóv., þegar flest var, stunduðu alls 19
bátar veiðar frá þessum stöðvum og þar
af 12 með línu, en 6 með dragnót, en í
desember voru dragnótaveiðar liættar og
15 bátar stunduðu þá veiðar með línu.
b. Vestfirðingafjórðungur.
Útgerð í Vestfirðingafjórðungi var
allmikið meiri nú en á fyrra ári. Tala
skipa af öllum stærðum var í ár 281, en
208 á fyrra ári, en mannatala var 1293
á móti 1168 á fyrra ári. Mest liefir
smærri skipunum fjölgað á árinu. Vél-
bátar yfir 12 smál. voru nú 6 fleiri, vél-
bátar undir 12 smál. 9 fleiri og af opn-
um vélbátum voru 30 fleiri en á fyrra
ári. Auk þess eru taldir 29 fleiri ára-
bátar. í janúar og fram í febrúar var
yfirleitt góður afli fyrir Vestfjörðum,
en dró úr, er leiö á veturinn. Um vorið
var enn tregur afli við Djúpið og i
Steingrimsfirði. Sunnan til á Vestfjörð-
um aftur á móti, t. d. í Patreksfirði,
Tálknafirði og Víkum, var mjög góður
afli í maí. Nokkurn hluta maímánaðar
var einnig góður afli í Arnarfirði og á
smábáta í Dýrafirði, og er það sjaldgæfl
um þetta leyti árs.
Haustvertíð var misjöfn á Vestfjörð-
um. Tregur afli var í veiðistöðvum Út-
Djúpsins, Súðavík, Isafjarðarkaupstað,
Hnífsdal og Bolungavík. Frá Suðureyri
og Flateyri er svipaða sögu að segja, og
voru þar slæmar gæftir í desember. I
öðrum veiðistöðvum aflaðisl sæmilega,
og á Ströndum, Steingrímsfirði og
Gjögri var ágætur afli. I október og nóv-
ember veiddist allmikil síld i lása á
Steingrímsfirði. Var það ,mest millisíld.
Meirihluti þess, sem veiddist, var selt til
beitu, aðallega til Siglufjarðar, ísa-
fjarðar og jafnvel suður í veiðistöðv-
arnar við Faxaflóa.
Miklum erfiðleikum olli lokun veiði-
svæðanna fyrir Vestfjörðum í nóvem-
ber, vegna beraðgerða Breta. Stóð haust-
vertíðin þá sem hæst, en lokunin hafði
í för með sér algera stöðvun mikils
hluta bátaflotans um tínia.
Þrátt fyrir aflatregðu þá, sem víða
var á baustverlíð, voru lilutir sjómanna
og afkoma öll góð, vegna liins háa verðs
á fiski til útflutnings í ís, en meirihluti
lians var seldur þannig.
Dragnótaueiðar stunduðu nokkrir l)át-
ar í fjórðungnum um sumarið og fram
á haust. I júní og júli voru þeir flestir
23, en fækkaði, er fram á leið, og í nóv-
ember voru þeir aðeins 10.
Rækjuveiðar voru stundaðar bæði frá
ísafirði og Bíldudal. Frá Isafirði voru
veiðarnar oftast stundaðar af 3 bátum,
og voru 2 menn á hverjum á tímabil-
inu frá áramótum fram í miðjan sept-
ember. Frá Bíldudal voru rækjuveiðar
stundaðar frá 4. jan. til 28. sept. Voru 5
bátar þegar flest var, en 2 héldu út allan
tímann. Veiðin nam alls 75.2 smál. og
fékkst aðallega í Arnarfirði og lítið eitt
i Geirþjófsfirði. Afli var yfirleitt tregur.
Tafla III sýnir tölu fiskiskipa og fiski-
manna i hinum ýmsu veiðistöðvum
Vestfirðingafjórðungs eins og hún var
hæst á árinu 1940.
Bátatala í Flatey var hin sama í ár
og á fvrra ári. Með Flateyjarbátunum
eru einnig taldir 2 aðkomubátar, sem
stunduðu veiðar þaðan, annar úr
Bjarneyjum, en hinn af Barðaströnd.
Allgóður afli hefir verið þar á árinu.
Ársafli í salt nam 64 smál. (56).
Úr Víkum gekk einum bát færra á
þessu ári en á fyrra ári. Ógæftir höml-
uðu sjósókn eftir að komið var fram í