Ægir - 01.01.1941, Qupperneq 48
42
Æ G I R
allar aðgerðir fara nú fram hér á landi,
sem áður fyrr fóru fram erlendis.
12. Hafnarg'erðir
og lendingarbætur.
I Stykkishólmi var gerð bátabryggja 55
m að lengd og 5.5 m breið. Hliðarveggir
eru steyptir, fyllt upp með grjóti, en
þekja steypt. Nær bryggjan fram í stór-
straumsfjöruborð. Var dýpkað svo við
enda bennar, að þar er nú 0.75 m dýpi
um lægstu fjöru. Uppfylling til fiskað-
gerða um 105 m- að flatarmáli var gerð
við land vestan við bryggjuna. Kostnað-
ur um 45 þús. kr.
í Ólafsvík var nokkuð unnið að klapp-
arhreinsun í hafnarkvínni. Áætlaður
kostnaður 4—5 þús. kr.
Á Suðureyri í Súgandafirði var full-
gerður kafli af liafskipabryggju, sem
ekki var lokið við á fyrra ári. Bryggjan
nær nú út á 3 m dýpi og hefir þegar,
að nokkru leyti, bætt úr brýnni þörf á
auknu bátabryggjurúnii. Unnið var i
sumar fyrir um 12 þús. kr., en alls hefir
kostnaður numið um 64 þús. kr.
í Grunnavík, norðanvert við ísafjarð-
ardjúp, var bafin bygging bátabryggju i
vörinni vestan megin víkurinnar. Byggð
var 20 m löng steinsteypt bryggja, 3j4
m á breidd og meðalhæð 2.10 m. Til þess
að l)ryggjan komi að fullum notum, þarf
að lengja bana enn um 20 m. Kostnaður
i sumar nam 4 980 kr.
Á Blönduósi var lokið við endurbygg-
ingu bátabryggjunnar norðan óss. Á þvi
verki var byrjað 1935, en lialdið áfram
1939. Kostnaður í sumar nam um 50 þús.
kr. og hefir þá allur kostnaður við end-
urbyggingu bryggjunnar numið um 110
þús. kr., og er bryggjan nú öll sem ný.
Er hún 103 m á lengd og 8 m breið, nema
hausinn, sem er 11 m á breidd og nær þvi
3 m suður fyrir til aukins skjóls. Hæð
er 1.6 m yfir liæsta flóð. Miðað við lægstu
fjöru nær bryggjan á ca. 10 feta dýpi.
Gela bátar og minni skip athafnað sig
við bryggjuna í flestum veðrum og hefir
þvi öll aðstaða batnað mjög í þessu efni.
Við bafnargerð á Siglufirði hefir verið
unnið i ákvæðisvinnu undanfarin 6 ár og
var að mestu lokið 1. júlí 1940, en þá
voru hafnarmánnvirkin tekin til afnota.
Ilafnargarðurinn er 163 m langur. Fram
með innri hlið garðsins er 13 m breið
og 125 m löng liryggja. Fyrir innan hafn-
argarðinn og fram við liafnarbakkann
liefir verið dýpkað að 6 m dýpi á 20—50
m breidd fram á hafnarsvæðið.
Samkvæmí samningi skal greiða fyrir
þessi verk 656 þús. kr., en annar kostn-
aður, svo sem undirbúningur, eftirlit o.
fl. mun auk þess nema um 40 þús. kr.
Hluti af dýpkuninni greiðist einnig auka-
lega.
Á Dalvík var haldið áfram með bygg-
ingu bafnargarðs, sem byrjað var á árið
1939. Garðurinn var lengdur í sumar um
87 m og er nú 126 m langur frá bakka.
Nær liann á 3.5 m dýpi við stórstraums-
fjöru.
Jafnframt garðinuin var byggð 7 m
breið bryggja sunnan á garðinn. Er það
staurabryggja, og er haus hennar á 3 m
dýpi á stórstraumsföru. Lengd bryggju
er 52.4 m. Kostnaður á sl. sumri nam um
90 þús. kr., og nemur þá allur kostnað-
ur um 200 þús. kr.
Á Kópaskeri var bryggjan lengd um
17 m. Kostnaður nam um 2 600 kr.
Á Raufarhöfn var nauðsynlegt, vegna
liinnar nýju sildarverksmiðju, að gera
nokkrar endurbætur á höfninni og
byggja nýja brvggju. Ætlunin var að
dýpka rennu inn að bryggjunum og
svæðið framan við þær. Miklir erfið-