Ægir - 01.09.1951, Qupperneq 39
Æ G 1 R
247
að ræða afganga af síld, sem ekki var talið
söltunarhæft, eða alls 8 745 hektólítrar, en
auk þess veiddist í sundunum við Reykja-
vík í nóvembermánuði 14 000 hektólítrar af
smásíld (kræðu), og var hún sett í bræðslu.
Síldveiðar útlendinga. Þátttaka útlend-
mga; þeirra sem vitað er um, varð minni i
sildveiðunum við Norðurland að þessu sinni
en undanfarin ár. Alls er vitað um 274 skip,
sem stunduðu veiðar um sumarið, en þau
höfðu verið 370 árið áður. Var þar aðallega
um að ræða reknetjaskip, en ekki er vitað
nema um 40 skip, sem stunduðu eingöngu
herpinótaveiði og auk þess 15 skip sem
stunduðu livorttveggja, herpinóta- og rek-
netjaveiði. Voru skip þessi frá 4 löndum,
þ. e. frá Noregi 211, en þaðan höfðu komið
255 árið áður, frá Svíþjóð 52, en þaðan
höfðu verið 102 árið áður, frá Finnlandi 9,
°g var það 4 fleira en verið hafði árið áður,
°g Danmörku 2, en það var 3 færra en árið
áður. Ekkert skip kom frá Þýzlcalandi, en
þaðan höfðu komið 3 sumarið 1949. Auk
þessara skip var vitað um rússnesk veiði-
skip, en ekki hefur tekizt að fá neinar upp-
lýsingar frá rússneskum yfirvöldum um
tölu þeirra eða veiði. Það var þó vitað, að
fjöldi þessara skipa var meiri en nokkru
sinni fyrr, þótt aldrei væri hægt að fá ör-
uggar upplýsingar um, hversu mörg þau
v°ru, en þó var vitað með nokkurri vissu,
sð þar var um að ræða fleiri tugi skipa af
ymsum stærðum, sem stunduðu veiðarnar,
°g auk þess stórt móðurskip.
Heildarafli hinna erlendu skipa, að und-
anteknum rússnesku skipunum, mun hafa
aumið rúmlega 121 000 tunnum, en það
samsvarar því, að meðalafli á hvert slcip
hafi verið 442 tunnur. Er hér að sjálfsögðu
Um að ræða lítinn afla þó vart sé hægt að
Segja, að um algeran aflabrest hafi verið
að ræða hjá þessum skipum, eins og hjá ís-
leuzka flotanum, þar sem þeirra afli er að
Venju töluvert mikið minni að meðaltali en
hjá íslenzku skipunum. Er öll síld, sem
hessi skip veiða, söltuð á skipsfjöl.
Norsku skipin voru eins og áður getur
langflest eða 211 að tölu, og voru þar af
165 reknetjaskip, 40 með herpinætur, en
6 með hvorttveggja.
Heildarafli norsku skipanna var 96 405
tunnur, og var það ekki helmingur aflans
áxáð áður, en þá hafði hann numið 223 700
tunnum alls, enda voru skipin þá töluvert
fleiri. Tæplega helnxingur þeirrar síldar,
sem noi-sku skipin söltuðu, ATar hausskor-
inn, eða 47 664 tunnur, en kryddað var í
30 494 tunnur, og sykursíld nam alls
11 824 tunnum. Aðrar verkunaraðferðir
voru matjessíld 2 675 tunnur, grófsöltuð
síld 1 577 tunnur og aðrar vei’kunaraðferð-
ir 1 171 tunna.
Fyrstu skipin af norska flotanum lögðu
upp frá Noregi um 5. júlí, en allan þann
mánuð voru þau að leggja af stað til ís-
lands. Stóð vertíðin hjá þeim fram undir
nxiðjan september, en síðustu skipin munu
hafa haldið heim milli 16. og 20. september.
Vegna hinnar lélegu veiði við ísland
hugsuðu Norðmenn lil þess að leita síldar
norðaustur i hafi og allt til Jan Mayen, en
þeir höfðu fengið af því fréttir, að þar væri
síldar von. Ekki fóru þó nenxa 5 skip af
norska flotanum til Jan Mayen þó einhver
fleiri muni sennilega hafa lagt upp en snúið
aftur. Fengu þessi skip nokkra veiði á tíma-
Lilinu frá ágxxstlokum til 16. september, en
létu annars heldur illa yfir ferðinni og
töldu skilyrði hin verstu til veiði þar norð-
urfrá. Vegna lélegrar veiði varð norski
flotinn að sniia heim með rneira en helm-
ing af þeim tunnurn, sem hann hafði farið
með tómar.
Sænsku skipin voru 52 að tölu og var
samanlögð rúmlestatala þeix-ra 6 541.
Stunduðu þau veiðar eingöngu með relc-
netjum að þessu sinni, enda höfðu Svíar
fengið slæma reynslu af herpinótaveiðinni
hér við land undanfarin aflaleysisár. Heild-
arafli sænsku skipanna varð 14 712 tunnur
og var meginhluti þeirrar síldar kryddaður
og sykursaltaður eða alls 11 266 tn., en
hausskoiáð var í 3 446 tn.
Finnsku skipin voru 9 að tölu, og var