Ægir - 15.12.1959, Síða 37
ÆGIR — AFMÆLISRIT
35
Bv. Skallagrímur (1920).
ör og talið er, að
á árinu 1907 hafi
vélbátunum fjölg-
að um 100.
Á þessu 5 ára
tímabili fækkaði
þilskipunum um
27 skip, 1697 br.
rúml., en togurun •
um fjölgaði um 5
skip 955 br. rúml.
— Meðal þessara
skipa eru „íslend-
ingur“ og „Val-
ur“, og var hinn
fyrrnefndi síðar
talinn til „línu-
veiðara", en ekki
togara, og sama
mætti segja um ,,Valinn“.
Næstu 5 árin er þróunin mjög í sömu
átt og næstu tímabil á undan árið 1915
voru tölurnar þessar:
Botnvörpuskip 20 tals 5059 br. rúml.
Önnur gufuskip 6 — 1248— —
Mótorskip yfir 12 1. 40 — 990— —
Mótorsk. undir 12 1. 391 — ekki tilgr.
Seglskip 95 — 3721 br. rúml.
Tala fiskiskipa 552 tals
Ef gert er ráð fyrir, að meðalstærð
vélbáta undir 12 rúml. sé 8 lestir, er rúm-
lestatala fiskiskipastólsins 14146.
Á tímabilinu 1911—1915 fjölgaði botn-
vörpuskipunum um 14, samtalt 3953 lest-
ir. Meðalstærð skipanna hækkaði úr 184
lestum í 253 lestir. Flest skipanna voru
keypt gömul, en fá ein voru nýsmíði.
önnur gufuskip eru talin 6, en frá þeirri
tölu ætti að draga 2 norsk skip, sem
voru skrásett á Seyðisfirði, 826 lestir.
Seglskipunum fækkar um 44 skip, sam-
tals 2520 lestir. Vélbátunum fjölgar jafnt
og þétt.
Heimsstyrjöldin fyrri hafði mikil á-
hrif á fiskveiðar Islendinga. Fiskafurðir
hækkuðu mjög í verði og þó útgerðar-
kostnaður hækkaði einnig mikið, gáfu
veiðarnar góðan arð og höfðu útgerðar-
menn þá rýmri fjárráð en áður hafði
þekkzt. Þegar kafbátahernaður Þjóðverja
komst í algleyming 1917 urðu siglingar
héðan mjög hættulegar. Bæði af þeirri
ástæðu og vegna erfiðleika um öflun út-
gerðarnauðsynja einkum kola, varð að
ráði að selja 10 togara til Frakklands
haustið 1917 og lækkaði tala togara þá
um helming. Jafnskjótt og um hægðist
eftir styrjöldina voru gerðar ráðstafanir
til þess að auka togaraflotann, með kaup-
um skipa aðallega frá Englandi og ný-
smíði þar. Voru þá stofnuð ný togarafé-
lög. Seglskipunum fækkaði, þau gengu úr
sér, voru seld til útlanda eða vélar sett-
ar í þau og fluttust þá í flokk mótor-
skipa. All margir vélbátar voru keyptir
frá útlöndum og nú mun stærri en áður,
allt að 60 lestum.
Árið 1920 er fiskiskipastóllinn þessi:
Botnvörpuskip 28 tals 8730 br. lestir
Önnur gufuskip 2 — 223— —
Vé'.b. (yfir 12 1.) 120 — 3538-----------
Vélb. (undir 12 1.) 355 —stærð ekki tilg.
Seglskip 39 — 1190 br. lestir
Þess er getið að framan, að samningar
hefðu verið gerðir, eftir lok heimstyrj-
aldarinnar, um smíði og kaup togara. Á
árinu 1920 bættust flotanum 19 togarar