Ægir

Volume

Ægir - 15.12.1959, Page 124

Ægir - 15.12.1959, Page 124
122 ÆGIR — AFMÆLISRIT vantaði alveg nauðsynleg dreifingarkerfi fyrir þessa vöru, og fiskinum pakkað í óhentugar umbúðir, þ. e. a. s. 7 lbs pergamentvafðar blokkir. Nú er hins veg- ar farið að selja freðfisk til Hollands í neytendaumbúðum, og er nú dreifingar- kerfi fyrir hendi. Standa vonir til þess, að fisksalan þar geti aukizt verulega. Snemma var reynt að selja til ísrael og fór þangað fyrsta sendingin árið 1947. Hefur árlega verði selt nokkurt magn af fiski til þessa lands. Til Austur-Þýzkalands tókst fyrst að selja árið 1953 og þá í beinum vöruskipt- um. Um tíma var ekki hægt að selja freð- fisk til ýmissa landa nema í beinum vöru- skiptum. Voru þessi viðskipti yfirleitt mjög erfið, en merkilegur þáttur í þróun- arsögu markaðsmálanna. Urðu samtök frystihúsaeigenda að koma á fót sérstök- um innflutningsfyrirtækjum til að annast innkaup varanna, þar eð aðrir innflytj- endur vildu ekki, í upphafi, sinna viðskipt- um við þessi lönd. Nú kaupir A.-Þýzkaland mikið af freð- fiski og hafa viðskiptin aukizt ár frá ári. Eins og fyrr segir, höfðu Bretar keypt nær alla freðfiskframleiðsluna til árs- loka 1945. Árið eftir kaupa þeir nær ekk- ert, eru stærstu kaupendur næstu 3 árin, og mjög stórir kaupendur til ársloka 1952. Síðan hefir sáralítið verið selt til Eng- lands annað en fryst hrogn og smávegis af flatfiski. Bretar eru mikil fiskneyzlu- þjóð og hafa aukið geysilega fiskveiðar sínar eftir stríð, en lagt minna kapp á að koma upp dreifingarkerfi fyrir fryst- ar vörur. Frysti fiskurinn hefir því til skamms tíma verið seldur uppþíddur, oft í slæmu ástandi og fyrir lágt verð. Af þessum ástæðum reyndist ekki mögulegt að halda þessum viðskiptum áfram. Nú virðist hins vegar vera að koma nokkur breyting á þessi mál. Er talið, að um 10% af fisksölunni í Bretlandi sé nú frystur fiskur og sé hann 15% af heildar- neyzlu frystra vara, og er mikið af honum í neytendaumbúðum, og seldur í frosnu ástandi. Þessi þróun mun þó sjálfsagt taka langan tíma, en S. H. hefir þegar hafið nauðsynlegan undirbúning til þess að tryggja varanlega aðstöðu á þessum markaði. Á fyrstu starfsárum frystihúsanna var nokkrum sinnum selt lítið magn af freð- fiski til Svíþjóðar. Má segja, að þessar sölur hafi allar mistekizt. Það var fyrst á árinu 1955, sem þessi markaður var opn- aður fyrir íslenzka fiskinn í neytenda- umbúðum og fer salan vaxandi. Bendir margt til þess, að þarna geti skapazt ágæt- ur markaður og líkar frysti fiskurinn mjög vel. Er áætlað að 50% af neyzlu frystra vara sé frystur fiskur, og er þetta hlutfall sennilega hvergi hærra. Enda eru nú um 10.000 búðir, sem selja frystan fisk, og er hann mikið auglýstur. Til fróðleiks má geta þess, að í Banda- ríkjunum er fyrrnefnt hlutfall aðeins 8%. Hér hafa aðeins verið talin upp helztu markaðslöndin. Þó verður ekki skilið við þetta efni án þess að nefna aðrar frystar afurðir frystihúsanna. Má þar fyrst nefna síldina, sem nú um árabil hefir verið all- stór útflutningsvara. Enda þótt frysti- húsin hafi frá fyrstu tíð fryst síld til beitu, mun útflutningur ekki hafa átt sér stað svo neinu næmi fyrr en á árinu 1945. Voru þá seldar um 1000 lestir til Frakk- lands, og nokkru minna 2 árum síðar. Á árinu 1949 takast fyrstu samningar um sölu á frystri Faxaflóasíld til Póllands og ári síðar til Tékkóslóvakíu. Þessi 2 lönd hafa síðan alltaf viljað kaupa mikið magn af frystri síld. Auk þessara landa eru vafalaust miklir sölumöguleikar fyrir frysta í síld í Sovét- ríkjunum, Austur-Þýzkalandi og víðar og hafa bæði löndin keypt nokkurt magn. Væri áreiðanlega hægt að auka mikið út- flutning á frystri síld, ef hún væri fyrir hendi. Fryst hrogn hafa verið seld til Eng- lands í mörg ár, og smávegis til Frakk- lands. Nokkuð hefir verið selt til Banda- ríkjanna af frystum humar og rækjum,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.