Ægir - 01.04.1993, Page 16
Jónas Haraldsson
Á 51. Fiskiþingi var félaginu kosin
ný stjórn til tveggja ára í samræmi
við nýja samþykktir fyrir félagið.
Undirritaður formaður stjórnar
félagsins mun hér á eftir reyna að
gera nokkra grein fyrir því starfi sem
unnið hefur verið af hálfu stjórnenda
félagsins frá síðasta Fiskiþingi.
Á undanförnum misserum hefur
því miður hallað undan fæti fyrir fé-
laginu og dregið úr þrótti þess.
Margar ástæður hafa legið til þess og
skulu hér nefndar tvær. Annars vegar
tilurð Fiskistofu sem fengið hefur til
sín verkefni sem Fiskifélagið annaðist
áður. Hins vegar mikill niðurskurður
á fjárlögum, mun meiri en aðrir aðil-
ar á fjárlögum hafa orðið að sæta.
Verður vikið að þessu nánar síðar í
skrifum þessum.
Nýkjörin stjórn félagsins hefur nú
haldið fjóra stjórnarfundi, nokkra
framkvæmdaráðsfundi auk funda
með starfsmönnum einstakra starfs-
deilda félagsins, ásamt sérstaklega
kosnum tengiliðum, svokölluðum,
sem hafa það hlutverk að vera
tengiliðir milli stjórnar og einstakra
starfsdeilda. Hefur sú skipan gefið
góða raun og ætluð ekki sízt til að
vera starfsmönnum félagsins hvati tii
frekari dáða.
Ráöning fiskimálastjóra
Þar sem Þorsteinn Gíslason hafð*
ákveðið að láta af störfum um síð-
ustu áramót var það eitt fyrsta verk
stjórnar að auglýsa stöðu fiskimála'
stjóra. Eins og kunnugt er var Bjarni
Grímsson ráðinn til starfans og var
einhugur innan stjórnar um ráðn-
ingu hans. Bjarna bíður mikið starf
við að reyna að rífa upp starfsemi fé'
lagsins.
Samstarfssamningur
viö Fiskistofu
Fyrir hinni nýju stjórn félagsins la
frágenginn húsaleigusamningur við
Fiskistofu, þar sem félagið leig11
Fiskistofu u.þ.b. helming húnæðis fé'
I Fiskifélaginu sameinast allir fulltrúar
sjóvarútvegsins, stórir og smáir.
174 ÆGIR 4. TBL. 1993