Ægir - 01.04.1993, Qupperneq 50
Nýjar gerðir sónartækja frá Furuno
Nýkominn er á markaðinn sónar
frá Furuno í tveimur útgáfum;
CH34 með 12 tommu skjá og
CH36 með 14 tommu skjá. Val er á
milli tveggja gerða af botnstykki, íyr-
ir 60kHz eða 162kHz senditíðni. Á
skjánunt má hafa hvort sem er átta
eða sextán lita sónarmynd. Framsetn-
ing á skjá er á fjóra mismunandi
vegu:
1. Venjulegur sónar, með sjálfvirkri
skönnun yfir allt að 360° svæði um-
hverfis skipið. Sónarmyndin sýnir
endurvörp innan ákveðins geira, sem
valinn er úr eftirfarandi gildunt: 45°,
90°, 135°, 180°, 225° og 360°. Jafn-
framt er valin miðlínustefna geirans
og halli sendigeislans niður frá lá'
réttu. Með hraðskönnun (fast scan)
koma endurvörpin frá hverri send-
ingu fram innan 45° geira á skjánum-
Til þess að skanna allt svæðið um-
hverfis skipið þarf því átta sendingar
hljóðpúlsins. Ef ekki er stillt á hrað-
skönnun þá sjást endurvörpin í 6
geirum og þarf þá sextíu sendingar til
að skanna 360° svæði. Þetta dregur
úr leitarhraðanum en eykur na-
kvæmni og langdrægni sónarsins. Að
lokum má hafa sónarmynd á efn
hluta skjásins og síritamynd dýptar-
mælis á neðri hlutanum, ef sónarinn
Mynd 3.
DRÖFN h/ftilkynnir
'JlJ 'jiíibtfúnfjnnnni}
Tökum aö okkur viögeröir, stillingar og
niöursetningar á eftirtöldum vélbúnaöi:
■ Dieselvélum ■ Stýrisbúnaöi
■ Afgastúrbínum ■ Vindum
■ Skrúfugírum ■ Dælum (margskonar)
■ Framgírum ■ Afréttingar
■ Kúplingum ■ Skrúfubúnaöi
Mitsubishi sérfræðingar
Einnig sjóðum við á skrúfuása
og skipsskrúfur.
Leitið tilboða - Reynið viöskiptin
Vinsamlegast hafid samband við: Hjalta Sigfússon, síma 91-52015 og
91-50393 eöa Sigurð Sigurðsson síma 91-654765, fax 91-654766.
208 ÆGIR 4. TBL. 1993