Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.10.1993, Qupperneq 22

Ægir - 01.10.1993, Qupperneq 22
REYTINGUR FRÁ AÐALFUNDI Botndýr á íslandsmiöum Nú er unnið að viða- miklu rannsóknaverkefni á botndýrum á íslandsmið- um á vegum Líffræðistofn- unar Háskóla íslands, um- hverfisráðuneytisins, Haf- rannsóknastofnunar, Nátt- úrufræðistofnunar, Sand- gerðisbæjar og Sjávarút- vegsstofnunar Háskólans. Verkefnið, sem gengur undir nafninu Biolce, er unnið í samvinnu við ýmsa erlenda háskóla. Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvaða botn- dýrategundir finnast á ís- lensku hafsvæði, að athuga útbreiðslu þeirra og meta hugsanleg áhrif ýmissa umhverfisþátta þar á, að kanna samfélög botndýra og hugsanleg áhrif veiðar- færa á þau, að athuga ætis- skilyrði botnfiska með hliðsjón af útbreiðslu og magni botndýra. Gert er ráð fyrir að nokkrar þús- undir tegunda muni finn- ast við rannsóknirnar. Þar af má búast við töluverð- um fjölda áður óþekktra dýrategunda. Reiknað er með að tekin verði sýni á um 600 athugunarstöðum og að fjöldi sýna verði alls á bilinu frá 1600 til 1800. Reiknað er með að 60-70 erlendir fræðimenn taki þátt í lokaúrvinnslu. (Fréttabréf Háskóla íslaruls) SKULDIR. VEXTIR OG HÓUNARSJÓBUR Alyktun abalfundar Samtaka fiskvinnslustöbva Miklar skuldir íslenskra sjávarútvegsfyrirtœkja, háir raunvextir og málefhi fyrirhugaðs þróunarsjóðs sjávaríítvegsins voru nieg- inmálin á aðalfundi Samtaka fiskvinnslustöðva sem haldinn var í Stykkishólmi 24. september. Skuldar 110 milljarða í ályktun aðalfundarins um skuldir sjávarútvegsins segir: „ís- lenskur sjávarútvegur skuldar nú um 110 milljarða, þar af um 60% í erlendum gjaldmiðlum, og er með- allánstími skuldanna um sjö ár. Á sama tíma og skuldir sjávarútvegs- ins hafa hækkað um 15 milljarða á einu ári hefur útflutningsverðmæti staðið í stað. Þessari þróun verður að snúa við. Á meðan sjávarútveg- urinn í heild er rekinn með tapi halda skuldirnar áfram að hlaðast upp. Sjávarútvegurinn verður að geta greitt skuldir sínar, að öðrum kosti er öllu efnahagslífinu stefnt í voða. Aðeins ein leið er fær til þess, en hún er sú, að sjávarútvegurinn nái að hagnast umtalsvert á kom- andi árum." Vextir vega þungt Um vaxtamál segir svo í ályktun aðalfundar SF: „Háir raunvextir innanlands þyngja róðurinn, en al- menn 2-3% raunvaxtalækkun inn- anlands getur lækkað fjármagns- kostnað sjávarútvegsins um allt að 1000 milljónir á ári. Aðalfundur SF fagnar samkomulagi Seðlabanka og lánastofnana, sem miðar að því að hægt verði að lækka nú þegar nafn- vexti á óverðtryggðum útlánum, en eftir stendur að raunvextir hér a landi eru alltof háir og ekki í neinu samræmi við það sem gerist hja okkar helstu viðskipta- og sam- keppnisþjóðum." Þróunarsjóður sjóvarútvegsins „Aðalfundur Samtaka fis^' vinnslustöðva telur að gera þurfi veigamiklar breytingar á frum- varpsdrögum um þróunarsjóð sjáv- arútvegsins sem ríkisstjórnin hefur tilkynnt sem forgangsverkefni á Al- þingi nú í haust. Aðalfundur SF tel- ur brýna þörf á öflugum úrelding- arsjóði í sjávarútvegi sem nái til fiskiskipa og fiskvinnsluhúsa. Aftur á móti er yfirtaka á skuldbinding' um atvinnutryggingadeildar og hlutabréfasjóðs Byggðastofnunar, sem eru langt umfram eignir, al- gjörlega óásættanleg. Aðalfundur SF skorar á stjórnvöld að taka upp viðræður við sjávarútveginn um stofnun á slíkum úreldingarsjóði, en það er algjör forsenda þess að einhver sátt verði um sjóðshug' myndina. Endurskoðun laga u® stjórn fiskveiða og stofnun þroum arsjóðs eru samtengd mál og algjört skilyrði að þessi stóru hagsmuna- mál sjávarútvegsins verði rædd og afgreidd samhliða á Alþingi." O 432 ÆGIR OKTÓBER 1993

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.