Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1993, Síða 33

Ægir - 01.10.1993, Síða 33
fimm pund. Frystihúsin urðu alltof niörg, en þetta var fórnin sem þjóðin færði á altari byggðastefn- unnar." Að vera vitur eftir á Atli Dam sagði í sjónvarpsvið- tali í mars 1993 að sennilega hefði verið hægt að komast af með 15-16 frystihús og óþarfi hefði ver- i& að byggja 2-3 frystihús á eyjun- um þar sem hægt er aö aka á milli byggðarlaga á fáeinum mínútum. Atli bætti við: „En við leggjum ^herslu á að þetta var liður í hyggðaþróun á eyjunum. Það er auðvelt að koma seinna og segja a<5 þannig hefði ekki átt að standa ah málum. Við skulum vera þess minnug að ætlunin var að skapa atvinnumöguleika á landsbyggð- mni en ekki að koma á miðstýr- lngu atvinnuvega eins og tíðkaðist 1 kommúnistalöndum og eins og Vjh sjáum fram á að gerast mun hér í Færeyjum á næstu mánuðum °g árum." Aö skapa atvinnu I stjórnmálaumræðunni greindi menn mjög á um gildi styrkjanna. 5umir töldu þá skaðlega, aðrir s°gðu að hér væri aðeins um að r®ða tilfærslu fjármagns en ekki styrk - einskonar endurgreiðslur til fiskveiðiflotans. Þetta þýddi að lit- *ð var á styrkinn sem nokkurs kon- ar uppbót til flotans vegna lítillar arðsemi í öðrum atvinnugreinum. ^teginröksemdin í þessu sambandi er að skipin hafi séð frystihúsum fynr hráefni, haldið uppi vinnu í skipasmíðastöðvum, keypt vörur °g þjónustu frá öðrum geirum og þsnnig skapað atvinnu og tekju- ^öguleika. í stuttu máli: skipin héldu öllu samfélaginu gangandi. Styrkir eða endurgreiöslur Bæði formaður Sjómannafélags- ins, Óli Jacobsen, og formaður út- vegsmanna, Osmund Justinusen, hafa haldið því fram að tekjurnar sem styrkirnir hafi skapað í öðrum greinum hafi verið a.m.k. helmingi hærri en sá styrkur sem skipin fengu. Þess vegna var, að þeirra mati, ekki um styrk að ræða heldur nauðsynlegar endurgreiðslur eða uppbætur frá landssjóði til sjó- manna og útgerðarmanna því að há laun í frystihúsum, mikill flutn- ingskostnaður og hagnaður út- flutningsaðila höfðu það í för með sér að litlu frystihúsin á lands- byggðinni gátu ekki greitt eðlilegt verð fyrir fiskinn. Sú tilhugsun að það hafi verið fiskvinnslan sem hélt samfélaginu gangandi og ekki öfugt og að Flráefnissjóður hafi ekki veitt styrki til sjávarútvegs heldur séð um endurgreiðslur til hans - þessi tilhugsun hefur að sjálfsögðu hlýjað mönnum um hjartaræturnar, en gjaldþrot lands- sjóðs Færeyja og nær allra pen- ingastofnana á eyjunum sýna hve fjarri hún er öllum sanni. Varanlegar skammtímalausnir Styrkir voru t.d. oft veittir sem kreppuhjálp í neyðartilvikum. Slíka kreppuhjálp er hægt að rétt- læta ef um skammtímalausn er að ræða og varanlegar úrlausnir leysa hana af hólmi þegar menn sjá að ekki er um tímabundna erfiöleika að ræða. En sú var ekki raunin. Margir styrkjanna, sem í byrjun voru veittir sem kreppuhjálp til skamms tíma, voru ekki liður í neinni heildaráætlun um hvernig leysa ætti kreppuna. Þessir styrkir urðu því varanlegir og áhrifa þeirra gætti þegar útgerðarmenn fjárfestu í nýjum og öflugri veiðitækjum. Alsiða var að reikna með þessum styrkjum við gerð fjárhagsáætlana fyrir skipin. Styrkir til oliu og hrá- efnis eru dæmi um slíkar skamm- tímalausnir sem höfðu áhrif á fjár- festingu. Þorskurinn og skattborgarinn Flestir samningar milli útvegs- manna og sjómanna voru háöir þeim skilyrðum að styrkir minnk- uðu ekki á samningstímanum. Þar með var landssjóður orðinn ósýni- legur aðili að öllum kjarasamning- um. Fiskvinnslan hefur þannig ver- ið í þeirri sérkennilegu aðstöðu að þegar fulltrúi hennar settist við samningaborð hafði það í rauninni enga þýðingu hversu mikið laun hækkuðu milli ára. Hærri laun þýddu að sjálfsögu hærri fram- leiðslukostnað, sem þýddi að skip- in fengu lægra verð, en það hafði aðeins í för með sér að Hráefnis- sjóður veitti hærri styrki. Þegar allt kom til alls voru það þorskurinn og skattborgarinn sem fjármögnuðu allar launahækkanir í fiskvinnsl- unni gegnum Hráefnissjóð. Mikill afli - lélegt hráefni Menn stóðu því að lokum uppi með fiskvinnslu þar sem fram- leiðslan var skipulögð nær ein- vörðungu með hliðsjón af þeim styrkjum sem hún gat fengið. Og þar sem flestir styrkjanna voru veittir á grundvelli magns fremur en gæða fengu Færeyingar flota sem var smíðaður með það fyrir augum að veiða mikið af fiski í stað þess að veiða góðan fisk sem mátti selja dýru verði. Margir togaranna gátu t.a.m. ekki veitt án þess að mikill hluti veiðinnar væri ÆGIR OKTÓBER 1993 443

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.