Tímarit lögfræðinga - 01.01.1955, Page 60
ui' lítið liðsinnt þeim foreldi'um, sem aðstoðar hennar leita
al' þeim sökum.
Ev nefndinni mikið kappsmál, að stofnsett verði vist-
heimili fyrir afvcgaleiddar stúlkur og mundi nefndin
tclja æskilcgt, að slílui heimili yrði valinn staður í ein-
hverjum þeirra héraðsskóla eða kvennaskóla landsins,
sem lítt cru sóttir og því mætti leggja niður.
Nefndinni er kunnugt um nokkurn hóp unglingsstúlkna,
sem nauðsynlega þyrfti að komast á slíkt uppeldisheimili.
Ættleiðingum fer sífellt fjölgandi og má um það deila,
hversu heppileg sú þróun er í okkar litla þjóðfélagi.
Fullyrða má hins vegar að nú er orðið rnjög ócðlilegt
samband á milli ættleiðinga og greiðslu fjölskyldubóta.
Þannig fær t. d. kona, sem er tvígift og á fyrri mann sinn
á lífi, ekki greiddar fjölskyldubætur með börnum af fyrra
hjónabandi, nema seinni maður hennar ættleiði börnin.
Virðist svo sem vonin um fjárhagslegan ávinning hafi í
sumum tilfellum verið aðalástæðan til beiðna um ættleið-
ingu.
Taflan um misfcrli barna og unglinga sýnir álíka
mikinn brotafjölda og árið áður, en þó er brot stálpaðri
unglinga hcldur færri cn árið áður og má væntanlega
setja það í samband við aukna atvinnu og vaxandi fjár-
ráð þeirra af þeim sökum.
Meira var nú um hnupl og þjófnaði en áður og voru
mikil brögð að því fyrir jólin, er ösin var mest í búðum,
að unglingar freistuðust til að slá eign sinni á útstilltar
vörur enda óvenjuleg vörumergð á boðstólum í búðum
bæjarins um síðustu jól og sýnist ekki ástæða til að draga
þá ályktun af aukningu brota, þessarar tegundra, að af-
brotahneigð barna fari vaxandi.
54