Tímarit lögfræðinga - 01.01.1962, Page 11
öðrum orðum, hvað er það, sem skilur á milli þeirra
alþjóðastofnana, sem Island má gerast aðili að sam-
kvæmt ályktun Alþingis og hinna, er óheimilt væri að
taka þátt í nema að undangenginni stjórnarskrár-
breytingu eða samkvæmt sérstakri stjórnlagaheim-
ild?
Þegar úr þvi á að leysa, þarf einkum að athuga, hvers
eðlis það ákvörðunarvald er, sem Alþjóðastofnun er feng-
ið, hvort afsalað er valdi, sem stjórnarskráin fær tiltekn-
um stjórnvöldum í hendur, hversu varanlegar, víðtækar
og mikilvægar skuldbindingar riki hefur á sig tekið gagn-
vart alþjóðastofnun og síðast en ekki sizt, hvort ákvörð-
unum alþjóðastofnunar er einungis ætlað að binda ís-
lenzka ríkið sjálft eða hvort þeim er beinlinis og án at-
beina íslenzkra stjórnarvalda hverju sinni ætlað að gilda
hér á landi, svo sem væru þær t. d. íslenzk lagaboð,
dómar uppkveðnir hér á landi eða úrskurðir innlendra
yfirvalda. Sé fyrirmælum frá hinum alþjóðlegu stofn-
unum aðeins ætlað að binda íslenzka ríkið sjálft, þannig
að eftir sem áður þyrfti atbeina íslenzkra stjórnarvalda
til að gefa þeim gildi hér á landi, myndi Island yfirleitt
heimil aðild, ef fullnægt væri skilyrðum 21. gr. stjórnar-
skrárinnar. í hinu tilfellinu, að ákvörðunum af hendi
alþjóðastofnunar sé ætlað gildi hér á landi án nokkurrar
meðalgöngu íslenzkra stjórnvalda hverju sinni, er um
svo víðtækt og óvenjulegt valdaafsal að tefla, að óeðlilegt
er, að það geti átt sér stað án sérstakrar stjórnlagaheim-
ildar eða undangenginnar stjórnarbreytingar, að minnsta
kosti, ef það er óafturtækt, og ekki er um því lítilvæg-
ari ákvarðanir að ræða. Leiðarstjarnan virðist því aðal-
lega verða sú, hvort afsalað er valdi, sem stjórnarskráin
fær handhöfum ríkisvaldsins og hvort ákvörðunum al-
þjóðastofnunar er ætlað að vera bindandi fyrir Island
eða er ætlað að gilda á íslandi, en vitaskuld verður jafn-
framt að taka tillit til ýmissa annarra atriða. Hér á landi
verða væntanlega taldar likur fyrir því, að millirikja-
Timarit logfræðinga
9