Tímarit lögfræðinga - 01.01.1962, Side 19
komið á fót. En Kola- og stálsamsteypan var stofnuð
þegar árið 1952, og átti þáverandi utanríkismálaráðherra
Frakka, Schumann, frumkvæði að stofnun þess banda-
lags. Er Kola- og stálsamsteypan á sinu sviði með svip-
uðu sniði og Efnahagsbandalagið, en stofnsamningur
hennar er hins vegar aðeins gerður til 50 ára. Öll eru
bandalög þessi í rauninni greinar á sama meiði.
Markmiðum og verkefnum Efnahagsbandalagsins verð-
ur hér eigi lýst. Þess skal aðeins getið, og þá fyrst og
fremst til að minna á það, að hvaða málefnum ákvarð-
anir bandalagsstofnananna geta sérstaklega lotið, að sam-
kvæmt Rómarsáttmálanum skal komið á sameiginlegum
eða frjálsum vöru-, vinnu-, þjónustu- og fjármagnsmark-
aði í öllum bandalagslöndunum. Jafnframt skal komið
á sameiginlegri stefnu i landbúnaðar og sjávarútvegs-
málum.
Stjórn Efnahagsbandalagsins er i 'höndum fjögurra
aðalstofnana, þ. e. framkvæmdastjórnarinnar, sem er
skipuð 9 mönnum, ráðsins eða ráðherranefndarinnar,
sem í á sæti einn ráðherra frá hverju bandalagsríki, þings-
ins, sem er, eins og sakir standa, skipað fulltrúum frá
þjóðþingum þátttökuríkjanna og dómstólnum, sem skip-
aður er 7 dómurum.
Ákvörðunarvald í málefnum bandalagsins er fyrst og
fremst i höndum ráðsins eða ráðherranefndarinnar, en
framkvæmdastjórnin gerir einkum tillögur til ráðsins, og
er gert ráð fyrir því að ákvarðanir ráðsins séu yfirleitt
teknar eftir tillögum framkvæmdastjórnarinnar. Fyrir-
mælum ráðsins er skipað niður í mismunandi flokka,
eftir þvi hversu víðtækt gildi þeim er ætlað, en út í þá
flokkun er eigi hægt að fara hér. En þau fyrirmæli, sem
hér er fyrst og fremst um að ræða, eru ákvarðanir sam-
kvæmt 2. og 4. lið 189. gr. Rómarsamningsins. Þinginu
er ætlað að hafa eftirlit með framkvæmdastjórninni, en
dómstóllinn hefur með höndum túlkun samningsins og
ákvörðun ýmissa lagaatriða, t. d. hvort samningsákvæð-
Tímarit lögfræðinga
17