Tímarit lögfræðinga - 01.06.1969, Blaðsíða 31
Nokkrir dómar frá árunum
1965 og 1966
Hér er um að ræða framhald af safni dóma bæjarþings
Reykjavíkur, sem birtist í síðasta hefti.
Yal dómanna hafa sömu menn annazt, þeir fulltrúar
yfirljorgardómara Björn Þ. Guðmundsson og Stefán M.
Stefánsson.
Leigusamningur — Uppsögn.
Stefnandi i máli þessu var félagið A, sem hafði verið
stofnað í því skyni, að hafa kennslu í listdansi. Stefnandi
gerði leigusamning við stefnda, B, sem var eigandi að til-
tekinni fasteign. Leigutíminn hófst 1. október 1961 og
var leigan kr. 2,000,00 á mánuði. Skriflegur leigusamn-
ingur var ekki gerður.
Málsaðilum bar mjög mikið á milli um ýmis atriði hins
munnlega leigusamnings, einkum um leigutímann. Stefn-
anda var gert að rýma húsnæðið 31. júlí 1962. Stefnandi
taldi uppsögn þessa ólögmæta og hélt þvi fram, að leigu-
samningur aðila hefði ekki verið til tiltekins tíma. Hafi
því lögum samkvæmt borið að segja samningnum upp
með þriggja mánaða fyrirvara miðað við 1. október eða
14. maí. Var því haldið fram, að lagaregla þessa efnis
byggðist á venjum og fordæmi.
Vegna hinnar meintu ólögmætu uppsagnar, taldi stefn-
andi sig eiga rétt á bótum vegna tjóns þess, sem hann
taldi sig hafa orðið fyrir.
Sundurliðaði stefnandi bótakröfu sína svo:
Tímarit lögfræðinga
115